19 janúar 2026
/
Innviðaráðuneytið
Greinargerð um sóknaráætlanir landshluta 2020-2024 gefin út
Greinargerð um sóknaráætlanir landshluta fyrir árin 2020-2024 hefur verið gefin út. Í greinargerð Byggðastofnunar og stýrihóps Stjórnarráðsins um byggðamál er fjallað um ráðstöfun fjárframlaga til sóknaráætlunarsamninga og framkvæmd þeirra á samningstímabilinu 2020-2024.
Innviðaráðuneytið, Byggðastofnun og stýrihópur Stjórnarráðsins um byggðamál fylgjast vel með framkvæmd sóknaráætlanasamninga og birtir Byggðastofnun árlega greinargerð þar sem gert er grein fyrir framvindu og ráðstöfun fjármuna fyrir liðið ár. Í lok hvers fimm ára samningstímabils er unnin greinargerð þar sem farið er yfir fimm ára tímabil sóknaráætlanasamninga.
Í greinargerðinni kemur m.a. fram að 5,96 milljörðum kr. var varið til sóknaráætlana á samningstímanum. Þar af komu um fimm milljarðar frá ríkinu. Fjármunum er fyrst og fremst varið til áhersluverkefna og uppbyggingarsjóða landshlutanna.
Sóknaráætlanir landshluta eru stefnumótandi áætlanir sem taka til starfssvæða landshlutasamtaka sveitarfélaga og eru sameiginlegt verkefni ráðuneyta og sveitarfélaga. Í þeim sameinast heimamenn um framtíðarsýn, markmið, forgangsröðun verkefna og leiðir til að áætlunin nái fram að ganga. Markmið sóknaráætlana er að ráðstafa fjármunum sem varið er til verkefna í einstökum landshlutum á sviði samfélags- og byggðamála, samkvæmt svæðisbundnum áherslum. Markmið með samningum er að stuðla að jákvæðri samfélags- og byggðaþróun, treysta stoðir menningar og auka samkeppnishæfni hvers landshluta og þar með landsins alls. Markmiðið er einnig að einfalda samskipti ríkis og sveitarfélaga og tryggja gagnsæi við úthlutun og umsýslu þeirra opinberu fjármuna sem til þeirra er varið. Landshlutasamtök sveitarfélaga vinna sóknaráætlun á sínu starfssvæði og bera ábyrgð á framkvæmd hennar.