22 janúar 2026
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Hættan á röskun AMOC kalli á afgerandi viðbrögð Norðurlandaþjóða
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Johan Rockström, forstjóri Potsdam Institute for Climate Impact Research og prófessor í jarðkerfisfræði, vekja athygli á ógninni sem Íslandi og öðrum þjóðum stafar af mögulegu hruni veltihringrásar Atlandshafsins (AMOC) í grein sem birtist á Vísi.is og í sænska dagblaðinu Dagens Nyheter í dag.
Jóhann Páll og Johan Rockström vísa til líkanarannsókna sem sýna að í 70% tilvika hrynji AMOC eftir árið 2100 ef losun gróðurhúsalofttegunda verður mikil til framtíðar, og jafnvel þótt losun dragist rækilega saman og bestu sviðsmyndir um samdrátt í losun gangi eftir sýna líkön hrun AMOC í 25% tilvika. Slík áhætta sé óásættanleg. Afleiðingarnar yrðu óafturkræfar kerfisbreytingar á heimsvísu og þar séu t.d. fæðukerfi sérstaklega viðkvæm.
„Óstöðugleiki AMOC hefur sérstaka þýðingu fyrir Norðurlöndin vegna áhrifa á loftslag í Norður-Atlantshafi. Beinar afleiðingar væru breytt hita- og úrkomumynstur og auknar vetrarhörkur sem myndu valda sveiflukenndari uppskeru í landbúnaði, álagi á orkuframleiðslu með vatnsafli, truflun aðfangakeðja og röskun á sjávarútvegi vegna vistkerfisbreytinga og öfgaveðra,“ segja þeir í grein sinni. Ekki sé lengur um að ræða fjarlæga sviðsmynd heldur öryggishættu sem þjóðir heims verða að horfast í augu við.
Jóhann Páll og Johan Rockström kalla eftir því að Norðurlöndin styrki enn frekar forystuhlutverk sitt í aðgerðum til þess að vinna gegn losun gróðurhúsalofttegunda. Um leið verði byggð upp sterk og samþætt kerfi til eftirlits, vöktunar, líkanagerðar og viðbúnaðar vegna AMOC-hættunnar og annarra loftslagsvendipunkta. Um sé að ræða áhættu sem ógni langtímaöryggi þjóða.
Af fundi Johan Rockström og Jóhanns Páls á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Brasilíu í nóvember sl.
Grein Jóhanns Páls og Johans Rockström á Vísi
Grein Jóhanns Páls og Johans Rockström í Dagens Nyheter
Grein Jóhanns Páls og Johans Rockström á ensku