22 janúar 2026

/

Utanríkisráðuneytið

Ráðuneytisstjóri á fundum í Washington

{image.Description}
Martin Eyjólfsson (t.h.) með Brendan Hanrahan í bandaríska utanríkisráðuneytinu.

Tvíhliða samband Íslands og Bandaríkjanna á sviði viðskipta og stjórnmála var til umræðu á fundum sem Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, átti í Washington fyrr í þessari viku en alþjóðamál komu jafnframt til umfjöllunar, málefni Grænlands og samstarf Evrópuþjóða og Bandaríkjanna.

Ráðuneytisstjóri fundaði m.a. með Matt Siordia, varaaðstoðarviðskiptafulltrúa Bandaríkjastjórnar, og Brendan Hanrahan, sem fer fyrir Evrópuskrifstofu utanríkisráðuneytisins bandaríska. Viðskiptasamband landanna, þ.m.t. tollamál, voru til umræðu sem og samstarf þjóðanna á sviði öryggismála og alþjóðamál, þ.m.t. málefni Grænlands.

Ráðuneytisstjóri fundaði einnig með nokkrum þingmönnum úr fulltrúadeild Bandaríkjaþings, m.a. bæði Chellie Pingree, þingkonu Demókrataflokksins frá Maine, og Greg Murphy, þingmanni Repúblikanaflokksins frá Norður-Karólínu, en þau fara saman fyrir Íslandsvinahópi í fulltrúadeild þingsins. Þá fundaði hann einnig með annars vegar Rick Larsen, demókrata frá Washington-ríki, og John Moolenaar, repúblikana frá Michigan. Auk þess var fundað með lykilstarfsmönnum formanns utanríkismálanefndar öldungadeildar þingsins. Þá sótti Martin einnig fundi í Alþjóðabankanum og átti gagnleg samtöl við sérfræðinga hjá hugveitum í Washington, auk þess sem hann tók hús á sendiherra Danmerkur í Bandaríkjunum og fulltrúa grænlensku heimastjórnarinnar, Jesper Møller Sørensen og Jakob Isbosethsen.