23 janúar 2026
/
Innviðaráðuneytið
Byggðaáætlun: Opnað fyrir umsóknir um framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna, sem innviðaráðherra veitir á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036 (aðgerð A.10 – Almenningssamgöngur á milli byggða). Umsóknarfrestur er til kl. 12 á hádegi mánudaginn 9. mars 2026.
Markmiðið er að styðja við áframhaldandi þróun almenningssamgangna milli byggða, m.a. til að tengja ýmsa sérakstursþjónustu við almenningssamgöngur. Til ráðstöfunar verða allt að 25 milljónir kr. en styrkur getur numið allt að 80% af heildarkostnaði við verkefni.
Í forgangi verða verkefni sem styðja við þróun leiðarkerfis, m.a. með samþættingu við aðra þjónustu eða breytingum á rekstrarformi.