26 janúar 2026
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Frumvarp um einföldun eftirlits á sviði hollustuhátta og mengunarvarna lagt fram í samráðsgátt
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett til kynningar í Samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til breytinga á fyrirkomulagi eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. Markmið frumvarpsins er aukið samræmi eftirlits, einföldun og skilvirkni.
Fyrir liggur fjöldi greininga og skýrslna, allt frá árinu 2001, sem sýnt hafa nauðsyn breytinga á fyrirkomulagi eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum og matvælaeftirliti. Ber þar hæst skortur á samræmi í eftirliti og þörf á skýrari ábyrgð og yfirstjórn með hollustuháttum og mengunarvörnum og matvælaeftirliti. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og atvinnuvegaráðherra kynntu áform um aukið samræmi og einföldun eftirlits með þessum málaflokkum á blaðamannafundi í haust.
Helstu breytingar samkvæmt frumvarpsdrögunum eru að ábyrgð á eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum verður færð frá heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga til Umhverfis- og orkustofnunar og samhliða er lagt til að heilbrigðisnefndir sveitarfélaga verði aflagðar. Gert er ráð fyrir að útgáfa starfsleyfa verði miðlæg á vegum fyrrgreindrar stofnunar og að eitt samræmt upplýsingakerfi fyrir þjónustuþega og eftirlitsaðila verði komið á fót.
Samhliða frumvarpi umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra mun atvinnuvegaráðherra leggja fram frumvarp á Alþingi vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með matvælum. Það frumvarp mun birtast í samráðsgátt á næstu dögum. Fyrir liggur áminningarbréf frá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) vegna eftirlits með matvælum. Áformaðar breytingar eru skýrt svar við þeim ábendingum.
Athygli er vakin á því að umsagnarfrestur vegna frumvarpsins í samráðsgátt stjórnvalda er til 17. febrúar nk.