27 janúar 2026

/

Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Breytt verklag við samningsgerð: Úttektir og skýrari gagnaskil

{image.Description}

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið (MNH) hefur tekið samningaumgjörð ráðuneytisins til gagngerrar endurskoðunar í því skyni að einfalda umsýslu og auka yfirsýn og eftirfylgni með ráðstöfun opinberra fjármuna. Einnig var horft til þess að samræma verklag milli málefnasviða sem sameinuðust við stofnun ráðuneytisins í mars 2025.

Við endurskoðunina var meðal annars litið til verklags og ábendinga Ríkisendurskoðunar, KPMG og alþjóðlegra viðmiða. Auknar kröfur, í hlutfalli við fjárhæð styrks, verða gerðar til styrkþega, m.a. til gagnaskila og gagnsæis.

Úttektir og skýrari gagnaskil

Síðustu mánuði hefur samningateymi MNH yfirfarið öll samningssniðmát ráðuneytisins og innleitt breytt og bætt verklag. Teymið mun áfram starfa að umbótum á þessu sviði.

Samkvæmt breyttu verklagi gerir samningateymið árlegar úttektir á samningum ráðuneytisins þar sem samningar eru valdir af handahófi, teknir til nánari skoðunar og eftir atvikum kallað eftir frekari gögnum. 

Breytingarnar fela í sér skýrara verklag og markvissara eftirlit, s.s. í formi frekari gagnaskila, markmiðasetningar og áðurnefndra úttekta. Flest af þeim gögnum sem óskað er eftir eru gögn sem umsækjendur þurfa nú þegar að standa skil á lögum samkvæmt. Yfirlit yfir helstu gögn má sjá í gátlista. Áhersla er lögð á að gera styrkþegum betur grein fyrir gagnaskilum við undirritun samnings svo umsækjendur viti hvaða gögnum þarf að halda til haga. Ráðuneytið styðst einnig við opinber gögn í fyrirtækjaskrá og Creditinfo.

Tímamörk eru lykilatriði 

Styrkþegi ber ábyrgð á að virða tímamörk samnings og standa skil á gögnum líkt og kveðið er á um í samningi. Ráðuneytið hefur heimild til að fella niður greiðslur séu tímamörk ekki virt. 

Algengt er að fjármagni sé úthlutað í áföngumog miðast þá greiðslur gjarnan við að umsækjandi standi skil á gögnum s.s. framvinduskýrslum til þess að samningur sé virkur. Berist gögn eða beiðni um framlengingu ekki innan tímamarka fellur samningur úr gildi.

Hvað og hvernig styrkir ráðuneytið? 

Ráðuneytið styrkir ýmis verkefni og stofnanir en almennt má fá góða yfirsýn yfir þá styrki sem í boði eru á vef ráðuneytisins. Þá annast ýmsar stofnanir ráðuneytisins umsýslu fjölmargra sjóða sem taka ákvarðanir um styrkveitingar og ráðstöfun fjármagns á málefnasviðum ráðuneytisins. Sem dæmi má nefna að Tónlistarmiðstöð úthlutar styrkjum úr tónlistarsjóði sem er fjármagnaður af ráðuneytinu. Auk þess sjá umsýsluaðilar á borð við Rannís um umsýslu sjóða og styrkja líkt og listamannalauna.

Það er í höndum umsýsluaðila að veita frekari upplýsingar um tiltekna sjóði og styrki. Nánari upplýsingar má nálgast í þessum lista hér:

Styrkir og sjóðir

Mismunandi samningar 

Hér að neðan má sjá yfirlit yfir algengustu tegundir samninga sem gerðir eru í ráðuneytinu og eru þeir ólíkir eftir umfangi og markmiði samnings. Styrkþegar eru hvattir til þess að kynna sér vel skilyrði þess samnings er sótt er um, sem og samninginn sjálfan, svo skýrt sé frá upphafi hvaða ákvæði eiga við og hvaða gögnum þarf að standa skil á og hvenær.

  1. Örvar 
    Styrkir til verkefna og viðburða á málefnasviðum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Styrkurinn er ekki veittur til ríkisstofnana eða sveitarfélaga. 
  2. Styrktarsamningur skv. 42. gr. laga um opinber fjármál
    Tilfallandi styrkir til verkefna sem heyra undir málefnasvið ráðherra. 
  3. Samningar um framkvæmdir, rekstur og afmörkuð verkefni samkvæmt 40. gr. laga um opinber fjármál
    Samningar ríkisaðila í A1-hluta um framkvæmdir, rekstur eða önnur afmörkuð verkefni til lengri tíma en eins árs.
  4. Samningar samkvæmt tilmælum fjárlaganefndar
    Ráðuneytið tekur ekki ákvörðun um að veita styrk en gerir samning skv.tilmælum frá fjárlaganefnd í samræmi viðverklagsreglur ráðuneytisins.

Öll samningsform ráðuneytisins taka mið af því að um opinbert fé er að ræða og því er gerð rík krafa til styrkþega að farið sé eftir lögum um opinber fjármál. Styrkþegar skulu hafa gagnsæi, rekjanleika styrktarfjár og faglega stjórnarhætti að leiðarljósi við nýtingu opinberra styrkja. 

Verkfærakista 

Ráðuneytið hefur tekið saman leiðbeiningar og sniðmát til þess að aðstoða umsækjendur við vinnslu gagna. Þar er að finna:

  • Gátlista yfir gögn sem þurfa að fylgja umsókn
  • Sniðmát að kostnaðar- og verkáætlun 
  • Sniðmát að framvindu- og lokaskýrslu
  • Sniðmát að greinargerð um ráðstöfun styrks 
  • Almennar leiðbeiningar og upplýsingar um góða stjórnarhætti

Nánari upplýsingar má nálgast á þessari undirsíðu á vef ráðuneytisins:

Styrkir og sjóðir