28 janúar 2026

/

Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Aukaúthlutun úr safnasjóði

{image.Description}
Frá aðalúthlutun safnasjóðs í febrúar 2025

Aukaúthlutun safnasjóðs fyrir árið 2025 fór fram á dögunum. Alls var 20.692.500 kr. úthlutað, en menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra úthlutar úr safnasjóði að fenginni umsögn safnaráðs.

Úr aukaúthlutun árið 2025 voru veittir 70 styrkir til 37 viðurkenndra safna, 50 styrkir eru til símenntunarverkefna og námskeiðahalds og 20 styrkir til stafrænna kynningarmála. Hægt er að sjá frekari upplýsingar um styrkþega og verkefni hér.

Hlutverk og tilgangur safnasjóðs er að efla starfsemi safna með styrkjum. Viðurkennd söfn önnur en söfn í eigu ríkisins geta sótt um rekstrarstyrki til að efla starfsemi sína og öll viðurkennd söfn geta sótt um styrki til skilgreindra verkefna. Önnur söfn, safnvísar, setur og sýningar geta notið styrks úr safnasjóði til skilgreindra verkefna í samstarfi við viðurkennd söfn.Aðalúthlutun safnasjóðs 2025 fór fram 14. febrúar í fyrra, en nánar má fræðast um þá úthlutun í fréttinni hér að neðan.

Aðalúthlutun safnasjóðs 2025