28 janúar 2026

/

Heilbrigðisráðuneytið

Elísabet Benedikz settur landlæknir

Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur sett Elísabetu Benedikz tímabundið í embætti landlæknis á meðan María Heimisdóttir landlæknir er í veikindaleyfi.

Elísabet er læknir að mennt með sérfræðileyfi í lyflækningum, gjörgæslulækningum og bráðalækningum auk þess að vera með meistarapróf í opinberri stjórnsýslu. Hún hefur um árabil starfað sem yfirlæknir á Landspítala, m.a. á bráðadeild og gæða- og sýkingavarnadeild. Síðastliðin tvö ár hefur hún verið yfirlæknir stjórnsýsludeildar klínískar þjónustu á Landspítala.

Elísabet tekur til starfa 1. febrúar næstkomandi.