30 janúar 2026

/

Dómsmálaráðuneytið

Utanríkisráðuneytið

Húsfyllir á fundi um áfallaþol Íslands í breyttum heimi

{image.Description}
Dómsmálaráðherra opnaði fundinn sem fram fór í Norræna húsinu í gær.

Opinn fundur um áfallaþol Íslands í nýrri heimsmynd fór fram í Norræna húsinu í gær. Fundurinn var haldinn á vegum Varðbergs, í samstarfi við dómsmálaráðuneytið og utanríkisráðuneytið. Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra setti fundinn og fjallaði í opnunarávarpi sínu um breytta heimsmynd, aukna óvissu í öryggisumhverfi Evrópu og mikilvægi þess að Ísland efli seiglu samfélagsins. Ráðherra lagði áherslu á að öflugir borgaralegir innviðir væru fyrsta lína varna og lykilforsenda þess að samfélagið geti staðist áföll.

„Við skynjum öll að heimsmyndin hefur breyst verulega á stuttum tíma. Frá því að vera fremur friðsæl mynd yfir í heim þar sem ríki margfalda fjárveitingar til öryggis- og varnarmála, tollastríð vofir yfir og alþjóðareglur virðast oft á tíðum upp á punt. Það er því eðlilegt að við séum að ræða öryggismál Íslands. Og ekki bara eðlilegt, heldur nauðsynlegt,“ sagði dómsmálaráðherra á fundinum.

Fundurinn er liður í áframhaldandi vinnu stjórnvalda að eflingu áfallaþols Íslands, með áherslu á samhæfingu, alþjóðlegt samstarf og styrkingu borgaralegra innviða.

Öflugar grunnstoðir mikilvægar til að efla áfallaþol

Á fundinum kom fram að Atlantshafsbandalagið hefur hvatt aðildarríki til að efla eigin grunnstoðir til að byggja upp sterkt og áfallaþolið samfélag. Hinrika Sandra Ingimundardóttir, verkefnisstjóri á varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, kynnti áfangaskýrslu stjórnvalda um áfallaþol Íslands á fundinum og hvernig sjö grunnviðmið Atlantshafsbandalagsins geta mótað stefnu og aðgerðir hér á landi. Skýrslan markar einn áfanga í vinnu stjórnvalda að heildstæðri kortlagningu, stefnumótun og tillögum að aðgerðum til að efla áfallaþol samfélagsins. 

Hinrika Sandra Ingimundardóttir verkefnisstjóri á varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins kynnti áfangaskýrslu stjórnvalda

Hinrika Sandra Ingimundardóttir, verkefnisstjóri á varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, kynnti áfangaskýrslu stjórnvalda

Megintillögur skýrslunnar lúta að því að komið verði á heildrænni nálgun með skýrri samhæfingu og auknum slagkrafti stjórnvalda, atvinnulífs og almennings. Niðurstöður skýrslunnar undirstrika að Ísland hefur á ýmsum sviðum byggt upp öflugan grunn, einkum í almannavörnum, en á sama tíma er bent á tækifæri til úrbóta.

Einnig flutti Runólfur Þórhallsson sviðsstjóri almannavarnasviðs ríkislögreglustjóra erindi um áfallaþol og nýtt frumvarp um almannavarnir. Þá flutti Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Veitna og stjórnarformaður Samorku, einnig erindi á fundinum um aðkomu atvinnulífsins að áfallaþoli út frá ómissandi innviðum.

Fjölmennt var á fundinum og honum streymt beint á helstu fjölmiðlum landsins. Upptöku af streyminu má sjá hér að neðan.