30 janúar 2026

/

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Stefnumótun ríkisstofnana nú aðgengileg almenningi

{image.Description}

Í fyrsta sinn hafa stefnur ríkisstofnana til þriggja ára verið birtar opinberlega. Með þessu er gagnsæi í ríkisrekstri aukið og eftirfylgni með árangri styrkt í samræmi við áherslur ríkisstjórnarinnar í gildandi fjármálaáætlun.

Samkvæmt lögum um opinber fjármál móta ríkisaðilar árlega stefnu til næstu þriggja ára, þar sem markmið, áherslur og mælikvarðar á árangur eru skilgreind út frá áætluðum fjárveitingum. Stefnur stofnana eru staðfestar af hlutaðeigandi ráðherra.

Stefnurnar eru birtar í mælaborði á vef Stjórnarráðsins sem uppfærist daglega og má gera ráð fyrir að stofnunum sem birta upplýsingar í mælaborðinu fjölgi ört. Þar verða einnig birtar samræmdar mælingar á þjónustu, mannauði og sjálfbærni í rekstri ríkisaðila.