30 janúar 2026

/

Dómsmálaráðuneytið

Varað við svikapóstum í nafni dómsmálaráðuneytis og lögreglu

{image.Description}

Embætti ríkislögreglustjóra hafa borist tilkynningar um tölvupóst þar sem lögreglan og dómsmálaráðuneytið eru ranglega titluð sem sendandi og skilaboðin sögð varða dómsmál.

Í tölvupóstinum er talað um dómsmál vegna netbrota og er nafn fyrrverandi ríkislögreglustjóra notað sem sendandi skilaboðanna í nafni ríkislögreglustjóra, lögreglu og dómsmálaráðuneytisins.

Við vekjum athygli á því að skilaboðin eru hvorki frá dómsmálaráðuneytinu né ríkislögreglustjóra og vörum fólk við að svara tölvupóstinum og við því að ýta á hlekki og viðhengi sem geta fylgt svikapóstum sem þessum.

Mikilvægt er að skoða öll skilaboð og allan póst með gagnrýnum augum, ekki smella á hlekki eða viðhengi sem eru grunsamleg og alls ekki gefa upp kortaupplýsingar eða viðkvæmar persónuupplýsingar.

Á heimasíðu CERT-IS, netöryggissveitar íslenskra stjórnvalda, er að finna gagnlega fræðslu um vefveiðar sem þessar.

Dæmi um slíkan svikapóst má sjá hér að neðan.