02 febrúar 2026

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Kallað eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2026

{image.Description}

Norðurlandaráð auglýsir eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2026 og er kastljósinu í ár beint að verkefnum sem uppfræða börn og ungmenni um umhverfis- og loftslagsmál og auka þekkingu þeirra og skilning á loftslagsbreytingum og mikilvægi líffræðilegrar fjölbreytni.

„Það eru börnin sem þurfa að búa við óafturkræfanlegar breytingar í framtíðinni. Þess vegna er ekki aðeins mikilvægt að við hlustum á þau, þau þurfa líka að búa yfir þekkingu og hæfni til að hafa áhrif á ákvarðanatöku okkar svo þau geti átt þátt í að búa í haginn fyrir þá framtíð sem þau óska sér,“ segir Eeva Furman, formaður dómnefndar umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs.

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs eru veitt fyrirtæki eða samtökum á Norðurlöndum, sem hafa  uppfrætt börn um mikilvægi umhverfis- og loftslagsmála, samhliða því að hafa samþætt náttúru- og umhverfisvitund starfi sínu, eða einstaklingi sem hefur unnið mikilsvert starf í þágu náttúru og umhverfis.

Allir geta sent inn tilnefningar, en frestur til að skila þeim er til 29. apríl næstkomandi. Hægt er að tilnefna norræna einstaklinga, fyrirtæki eða samtök sem starfa á Norðurlöndum eða eru í samstarfi við aðila utan Norðurlanda. Verkefnin þurfa jafnframt að hafa tengingu við Norðurlönd.

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs vekja athygli á og styðja við áhrifaríkt framtak umhverfinu til góða. Verðlaunaféð er 300.000 danskar krónur.

Hægt er að senda inn tillögur um verðlaunahafa með því að fylla út þar til gert eyðublað.

Sendið inn tillögur að tilnefningum til Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2026

Frétt Norðurlandaráðs þar sem óskað er eftir tilnefningum