02 febrúar 2026
/
Dómsmálaráðuneytið
Öruggara Ísland - Stefna og aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi
Dómsmálaráðuneytið hefur birt nýja stefnu og aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi. Stefnan er sú fyrsta sinnar tegundar og í henni er fjallað um þær áherslur og aðgerðir sem stjórnvöld telja nauðsynlegt að ráðast í til að stemma stigu við skipulagðri brotastarfsemi hér á landi.
Stefnunni er ætlað að setja fram skýra framtíðarsýn og tryggja að til staðar séu þau verkfæri sem nauðsynleg eru yfirvöldum til að berjast gegn skipulagðri brotastarfsemi. Með henni er leitast við að skapa lögreglu og öðrum yfirvöldum ramma um starf þeirra við að stemma stigu við og rannsaka skipulagða brotastarfsemi hér á landi.
Öruggara Ísland - Stefna og aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi