02 febrúar 2026
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Úthlutað úr Talsetningar- og textunarsjóði fjölmiðlaveitna
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur tilkynnt um úthlutun styrkja úr Talsetningar- og textunarsjóði fjölmiðlaveitna. Tveir umsækjendur hljóta styrk úr sjóðnum vegna verkefna ársins 2025.
Talsetningar- og textunarsjóður fjölmiðlaveitna er starfræktur tímabundið til þriggja ára og var úthlutað úr sjóðnum í fyrsta skipti árið 2024. Sjóðnum er ætlað að styrkja innlenda einkarekna fjölmiðla sem talsetja og texta barnaefni á íslensku með það að markmiði að jafna samkeppnisstöðu þeirra gagnvart erlendum fjölmiðlum og stuðla að vernd íslenskrar tungu.
Styrkir eru veittir til talsetningar og/eða textunar barnaefnis á íslensku. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra úthlutar fé úr sjóðnum einu sinni á ári og getur styrkur til verkefnis aldrei numið hærri fjárhæð en 80% kostnaðaráætlunar. Miðað er við að efnið hafi verið frumsýnt á áskriftarfjölmiðli á síðastliðnum 12 mánuðum og er þar miðað við dagsetningu umsóknarfrests. Skilyrði er að viðkomandi áskriftarfjölmiðill hafi fleiri en 2000 áskrifendur.
Auglýst var eftir umsóknum 28. nóvember 2025 og var frestur til skila á umsóknum veittur til miðnættis 14. desember 2025. Við mat á umsóknum var litið til stöðu umsækjenda á grundvelli reglna nr. 1231/2025, um úthlutun styrkja úr Talsetningar- og textunarsjóði fjölmiðlaveitna, og þeirra skilyrða sem þar eru sett.
Alls bárust þrjár umsóknir um styrkveitingu úr sjóðnum fyrir tilgreindan umsóknarfrest, frá Sýn hf., vegna barnaefnis á Sýn+, frá Símanum hf. vegna barnaefnis á Sjónvarpi Símans Premium og frá Skjásýn ehf., vegna barnaefnis sem aðgengilegt er á Sýn+.
Tvær umsóknir uppfylltu skilyrði reglna nr. 1231/2025 um úthlutun styrkja úr Talsetningar- og textunarsjóði fjölmiðlaveitna og hljóta eftirfarandi umsækjendur styrk úr sjóðnum að þessu sinni:
Síminn hf.: 20.839.437 kr.
Sýn hf.: 6.600.000 kr.