04 febrúar 2026

/

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ánægja með opinbera þjónustu aldrei meiri

{image.Description}

Alls eru 86% ánægð eða mjög ánægð með þjónustu ríkisstofnana, samkvæmt nýjustu þjónustukönnun ríkisins. Mælt var viðhorf til þjónustu 63 stofnana og byggjast niðurstöðurnar á um 140.000 svörum sem bárust á síðasta ári.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra:

„Þetta eru virkilega jákvæðar niðurstöður og lýsa vel þeim mikla metnaði sem er meðal starfsmanna ríkisins við að veita góða opinbera þjónustu. Það er mikilvægt að ræða hið opinbera á grunni staðreynda sem þessara og hlusta á raddir notenda til að bæta þjónustuna enn frekar.“

Hlutfall þeirra sem eru mjög ánægð með þjónustuna hefur hækkað úr 30% árið 2020 í 58% árið 2025. Alls ná 23 stofnanir þeim áfanga að vera með einkunnina 4,2 eða meira í ánægju með þjónustu. Almennt er talað um að einkunn sem er 4,2 eða hærri sé á svokölluðu styrkleikabili sem er mælikvarði um mikil gæði í starfsemi.