05 febrúar 2026
/
Heilbrigðisráðuneytið
Sjálfvirkum lyfjaskömmturum fjölgað til muna í heimahjúkrun
Heilbrigðisráðherra hefur tryggt Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) og Reykjavíkurborg varanlegt fjármagn til að fjölga sjálfvirkum lyfjaskömmturum í heimahjúkrun um rúmlega 100. Fjölgun þeirra er í samræmi við mat þessara þjónustuveitenda á fyrirliggjandi þörf. Í heilbrigðisumdæmum landsins utan höfuðborgarsvæðisins meta þjónustuveitendur þörf fyrir nærri tvöfalt fleiri lyfjaskammtara en nú eru í notkun og fjölgun sem því nemur er í undirbúningi.
Eykur öryggi fólks í heimahúsum
Sjálfvirkir lyfjaskammtarar voru fyrst teknir í notkun hér á landi árið 2021 á 25 heimilum skjólstæðinga Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og skömmu síðar hjá jafn mörgum þjónustuþegum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þetta reyndist mikilvægt skref í þróun fjarheilbrigðisþjónustu með hagnýtingu velferðartækni. Lyfjaskammtararnir tryggja notendum rétta lyfjagjöf á tilsettum tíma sem eykur öryggi þeirra, stuðlar að skilvirkari þjónustu og síðast en ekki síst styður fólk til sjálfstæðrar búsetu í heimahúsum lengur en ella. Lyfjaskammtararnir nýtast vel fólki sem notar mörg lyf og reynist erfitt að halda yfirsýn um inntöku þeirra á réttum tíma.Fjölgun í samræmi við mat á þörf
Heilbrigðisráðuneytið réðist í könnun meðal þjónustuveitenda um allt land á ætlaðri þörf fyrir fjölgun sjálfvirkra lyfjaskammtara til að mæta þörfum einstaklinga þurfa og geta nýtt sér þessa þjónustu. Niðurstaðan liggur fyrir og er fjölgun lyfjaskammtara á höfuðborgarsvæðinu í samræmi við það mat. Um allt land utan höfuðborgarsvæðisins eru um 120 sjálfvirkir lyfjaskammtarar í notkun, flestir í heilbrigðisumdæmi Norðurlands. Samkvæmt mati þjónustuveitenda þarf að fjölga þeim um 110 og vinnur ráðuneytið að því í samvinnu við þjónustuveitendur í heilbrigðisumdæmunum.