06 febrúar 2026

/

Utanríkisráðuneytið

Þorgerður Katrín ræddi við utanríkisráðherra Tyrklands

{image.Description}

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í gær símafund með Hakan Fidan utanríkisráðherra Tyrklands. Ráðherrarnir ræddu sameiginleg hagsmunamál sem og vaxandi tvíhliða samstarf ríkjanna á alþjóðasviðinu.

„Ég þakkaði honum fyrir þann áhuga sem tyrknesk stjórnvöld hafa sýnt Íslandi og norðurslóðum að undanförnu. Þjóðir okkar eiga í góðum tvíhliða samskiptum og við erum auðvitað bandamenn til áratuga í Atlantshafsbandalaginu,“ segir Þorgerður Katrín. „Þá tilkynnti hann mér ósk stjórnvalda í Tyrklandi um að koma á fót sendiráði hér á Íslandi síðar á þessu ári. Þetta eru góðar fréttir - enda mikilvægt að treysta tengslin við bandamenn okkar í Atlantshafsbandalaginu. Það er einnig ánægjulegt að finna fyrir auknum áhuga og ábyrgð vegna Norður-Atlantshafsins og norðurslóða.“

Þá voru málefni Gaza, Úkraínu og Grænlands sömuleiðis til umræðu á símafundi ráðherranna.