09 febrúar 2026

/

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skattfrjáls ráðstöfun séreignarsparnaðar verði gerð varanleg

{image.Description}

Drög að frumvarpi um skattfrjálsa ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána hafa verið sett í samráðsgátt. Frumvarpið er hluti af fyrsta húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar, sem kynntur var 29. október 2025.

Í frumvarpinu er lagt til að heimild einstaklinga til skattfrjálsrar ráðstöfunar á séreignarsparnaði inn á höfuðstól lána, sem tryggð eru með veði í íbúðarhúsnæði til eigin nota, verði gerð varanleg. Gert er ráð fyrir því að heimildin öðlist þegar gildi en að mögulegt verði að sækja um að nýta hana afturvirkt frá 1. janúar 2026.

Mögulegt að nýta heimildina í tíu ár
Í flestum meginatriðum er lagt til að sambærileg skilyrði gildi um nýtingu heimildarinnar og gilt hafa undanfarin ár. Þó eru lagðar til nokkrar breytingar. Þar má helst nefna tillögu um að einstaklingum verði framvegis heimilt að nýta sér heimildina í tíu ár eða samanlagt 120 mánuði að hámarki.

Hámarksfjárhæð miðist við einstakling
Þá er lagt til að hámarksfjárhæð til skattfrjálsrar ráðstöfunar á árinu 2026 geti að hámarki numið samtals 500 þús. kr. og að sú fjárhæð taki árlegum hækkunum í samræmi við vísitölu neysluverðs í upphafi hvers árs, fyrst árið 2027. Þá er lagt til að hámarksfjárhæð miðist í öllum tilvikum við einstaklinga í stað þess að sérstakt lægra viðmið gildi fyrir hjón og sambúðarfólk.

Loks er í frumvarpinu tillögur að breytingum á lögum um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð. Breytingunum er ætlað að samræma betur skilyrði úrræðanna tveggja og einfalda framkvæmd.