10 febrúar 2026

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Opið er fyrir umsóknir vegna þróunarverkefna búgreina, garðyrkju, sauðfjárræktar, nautgriparæktar og hrossaræktar

{image.Description}

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Afurð, stafrænu stjórnsýslukerfi atvinnuvegaráðuneytisins.

Í nautgriparækt eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska nautgriparækt og fela í sér rannsóknir og þróunarverkefni.

  • Í sauðfjárrækt eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska sauðfjárrækt og falla undir kennslu, rannsóknir, leiðbeiningar og/eða þróun í sauðfjárrækt.

  • Í hrossarækt eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska hrossarækt og fela í sér að viðhalda verðmæti eiginleika í íslenska hrossastofninum og velferðar hestsins.

  • Í garðyrkju eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska garðyrkju og falla undir ráðgjafaverkefni, kynningaverkefni, rannsókna- eða tilraunaverkefni, vöruþróunarverkefni, verkefni sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og endurmenntunarverkefni.

Umsóknarfrestur er til 15. mars 2026. Auglýst er eftir umsóknum tvisvar á ári.

Umsóknir berist í Afurð.