10 febrúar 2026

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Skóflustunga tekin að nýju uppbyggingarverkefni í Hafnarfirði með fjölda íbúða fyrir fyrstu kaupendur sem fá hlutdeildarlán

{image.Description}
Skóflustungan tekin í Hafnarfirði nú síðdegis. Frá vinstri: Pálmar Harðarson, framkvæmdastjóri Þingvangs, Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og Kristín Hrönn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka.

Skóflustunga var í dag tekin að nýju uppbyggingarverkefni við Hjallahraun í Hafnarfirði með fjölda íbúða fyrir fyrstu kaupendur sem fá hlutdeildarlán.

  • Þetta er fyrsta verkefnið sem stjórnvöld og byggingaraðilar ráðast sameiginlega í eftir að ríkisstjórnin kynnti fyrsta húsnæðispakkann sinn.
  • Byggðar verða tæplega 400 íbúðir – þar af þriðjungur fyrir fyrstu kaupendur í gegnum hlutdeildarlán.

Þau sem tóku skóflustunguna voru Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, Pálmar Harðarson, framkvæmdastjóri Þingvangs, Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og Kristín Hrönn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka.

Af þeim 390 íbúðum sem verða byggðar verður þriðjungur fyrir fyrstu kaupendur í gegnum hlutdeildarlán. Í fyrsta áfanga verkefnisins verða byggðar 177 íbúðir – þar af 60 íbúðir hið minnsta fyrir þau sem uppfylla skilyrði hlutdeildarlána.

Hlutdeildarlán eru lán sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun veitir þeim sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð eða hafa ekki átt íbúðarhúsnæði síðastliðin fimm ár og eru undir tilteknum tekjumörkum.

Uppbyggingarverkefnið hefur verið í bið en er nú aftur farið af stað í kjölfar þess að ríkisstjórnin kynnti fyrsta húsnæðispakkann sinn og breytingar voru gerðar á fyrirkomulagi hlutdeildarlána.

Verkefnið endurhannað til að falla að skilyrðum hlutdeildarlána

Þingvangur hafði áður undirbúið uppbyggingu á íbúðum í Hjallahrauni en hætti við verkefnið um mitt ár 2024 vegna hárra vaxta og óvissu um sölu. Nú hefur Þingvangur endurhannað fyrsta áfanga verkefnisins svo að a.m.k. 60 íbúðir passi inn í ramma hlutdeildarlána. Íbúðunum hefur því fjölgað og meðalstærð þeirra minnkað frá fyrri hönnun.

Samkvæmt viljayfirlýsingu sem undirrituð var samhliða skóflustungunni er samstarfið á milli stjórnvalda og byggingaraðila grundvöllur þess að hægt sé að fara af stað með þetta stóra uppbyggingarverkefni á höfuðborgarsvæðinu og auka framboð íbúða verulega, þar með talið íbúða innan hlutdeildarlánakerfisins.

Breytt landslag með lögum sem Alþingi samþykkti í desember

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra:

„Breytingarnar sem við gerðum nýverið á hlutdeildarlánakerfinu gjörbreyta stöðunni. Með því að ríki, sveitarfélög og uppbyggingaraðilar gangi sameinuð til verks rjúfum við kyrrstöðuna og tryggjum framboð á íbúðum sem henta fyrstu kaupendum og falla inn í hlutdeildarlánakerfið. Uppbyggingaraðilar geta þá byggt sérstaklega inn í kerfið sem áður var ekki mögulegt. Ég fagna þessu gríðarstóra uppbyggingarverkefni sem nú er hafið og hlakka til að sjá önnur sambærileg fara af stað.“

Pálmar Harðarson, framkvæmdastjóri Þingvangs:

„Þingvangur hefur beðið lengi eftir að geta hafið þessa uppbyggingu og núna er það mögulegt þegar félags- og húsnæðismálaráðherra leggst á vogarskálarnar með okkur ásamt Hafnarfjarðarbæ, fjárfestum og Íslandsbanka. Ég vil þakka þeim sérstaklega fyrir að leggja sitt af mörkum svo hægt sé að koma verkefninu af stað.

Þetta er í fyrsta sinn sem komin er einhver mynd af forsölusamningi fyrir okkur uppbyggingaraðilana til að geta akkerað verkefnin í upphafi og hannað íbúðirnar sérstaklega fyrir hlutdeildarlánin og líka fyrir almenna markaðinn því við viljum gera allar gerðir íbúða fyrir öll.“

Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnafjarðar:

„Við fögnum þessari uppbyggingu. Við höfum lagt áherslu á það frá upphafi að hér verði fjölbreyttar íbúðir sem henta öllum í samfélaginu. Það er gleðilegt að sjá gott samstarf á milli byggingarverktakanna og ríkisstjórnarinnar í þessu verkefni. Bæjarfélagið hefur átt í góðu samstarfi við Þingvang og sýnt sveigjanleika þegar kemur að skipulagsskilmálum. Ekki hefur verið slegið slöku við í íbúðauppbyggingu hér í Hafnarfjarðarbæ síðustu ár og við ætlum að axla þá ábyrgð áfram.“

Skóflustungan tekin í Hafnarfirði nú síðdegis. Frá vinstri: Pálmar Harðarson, framkvæmdastjóri Þingvangs, Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og Kristín Hrönn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka.

Viljayfirlýsing undirrituð samhliða skóflustungunni: Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, ásamt Hermanni Jónassyni, forstjóra Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, og Pálmari Harðarsyni, framkvæmdastjóra Þingvangs.