11 febrúar 2026
/
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða rýmkaðar
Áform um fyrirhugaðar breytingar á lagaákvæðum sem setja lífeyrissjóðunum skorður til fjárfestinga hafa verið birt í samráðsgátt.
Ekki er ætlunin að kollvarpa því fyrirkomulagi sem komið var á með lögum árið 2016 heldur gera umbætur með því að rýmka nokkrar takmarkanir, einfalda framsetningu og sníða af vankanta sem komið hafa fram í framkvæmd.
Öll rýmkun felur í sér að meginreglan, sem nefnd hefur verið skynsemisregla, í 36. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, fær meira vægi. Skynsemisreglan mælir fyrir um að fjárfestingarstefna lífeyrissjóða skuli sett fram af ábyrgð og taki mið af skuldbindingum og hlutverki hvers lífeyrissjóðs. Jafnframt er áformað að leggja til breytingar sem varða rekstur, innra eftirlit og innri endurskoðun.