11 febrúar 2026
/
Heilbrigðisráðuneytið
Til umsagnar: Drög að þingsályktunartillögu um málefni offitu
Heilbrigðisráðuneytið birtir til umsagnar drög að þingsályktun heilbrigðisráðherra um aðgerðaáætlun um málefni offitu. Áætlunin er unnin upp úr tillögum starfshóps um offitu, holdafar, heilsu og líðan sem skilaði skýrslu til heilbrigðisráðherra í febrúar 2024, en byggir einnig á vinnu verkefnastjóra og þverfaglegri vinnustofu um málefni offitu á Íslandi sem haldin var á vegum ráðuneytisins í maí 2025. Umsagnarfrestur er til 25. febrúar næstkomandi.
Framtíðarsýn stjórnvalda í málaflokknum er fjórþætt:
1) Efling forvarna með áherslu á að draga úr nýgengi offitu og koma í veg fyrir þróun alvarlegra offitu, sérstaklega meðal ungra einstaklinga. Þá verði unnið gegn neikvæðum viðhorfum og fordómum.
2) Algengi offitu meðal barna verði ekki lengur hæst á Norðurlöndunum.
3) Offita verði meðhöndluð líkt og aðrir langvinnir sjúkdómar, með uppvinnslu, formlegri greiningu og aðgengi að langtímameðferð og endurhæfingu þar sem byggt er á gagnreyndum aðferðum.
4) Fjölbreytt og fagleg meðferðarúrræði verði aðgengileg þeim sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda vegna sjúkdómsins.