12 febrúar 2026
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Sigurlín hlaut viðurkenningu Málnefndar um íslenskt táknmál
Sigurlín Margrét Sigurðardóttir er handhafi viðurkenningar Málnefndar um íslenskt táknmál í ár, en viðurkenningin var veitt í gær á degi íslenska táknmálsins. Sigurlín hlýtur viðurkenninguna fyrir framlag sitt til eflingar íslensks táknmáls, t.a.m. með því gera það sýnilegt á fjölbreyttum vettvangi í samfélaginu. Þá hlaut Sigríður Borg Harðardóttir heiðursviðurkenningu Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra fyrir framlag hennar til varðveislu íslensks táknmáls.
Nýjasta verkefni hennar er Táknmálsvitinn, sem Sigurlín opnaði á samfélagsmiðlum. Þar fræðir hún um íslenskt táknmál bæði á íslensku og íslensku táknmáli með það að markmiði að auka skilning og efla vitund almennings. Hún minnir þar á að táknmál séu mannréttindi. Til viðbótar rekur Sigurlín ferðaþjónustu á táknmáli og tekur á móti erlendum og innlendum ferðamönnum og sýnir þeim landið.
Þá hefur hún mótað og þróað fjölmörg verkefni og fengið til samstarfs m.a. Endurmenntun Háskóla Íslands og Reykjavíkurborg. Verkefnin hafa falist í leiðsögnum á íslensku táknmáli um ýmsar menningarstofnanir, til dæmis Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Árbæjarsafn, Hellisheiðarvirkjun, listasýningar og handritin í Eddu.
Íslenskt táknmál jafnrétthátt íslensku
Degi íslenska táknmálsins var fagnað í fjórtánda skipti í gær á afmælisdegi Félags heyrnarlausra. Íslenska táknmálið var viðurkennt með lögum á Alþingi árið 2011 en þar er það skilgreint jafnrétthátt íslensku og sem fyrsta mál þeirra sem þurfa að reiða sig á táknmál til tjáningar og samskipta. Áætlað er að um 300 Íslendingar tali táknmál.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra skipar Málnefnd um íslenskt táknmál til fjögurra ára í senn samkvæmt lögum um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls frá 2011. Hlutverk málnefndar er að stuðla að eflingu íslensks táknmáls, notkun þess í íslensku þjóðlífi, styrkja stöðu þess og virðingu og beita sér fyrir aðgerðum til varðveislu þess. Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra (SHH) er undirstofnun menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. Auk þess að veita Sigríði Borg heiðursviðurkenningu á degi íslensks táknmáls í gær opnaði SHH nýja krakkasíðu, sem ætlað er að auka aðgengi barna að íslensku táknmáli.
Á síðasta ári lögfesti Ísland samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og skuldbatt sig þar með til að tryggja að menntun fólks, sérstaklega barna með heyrnarskerðingu, fari fram á viðeigandi tungumáli og tjáningarmáta sem hentar viðkomandi einstaklingi og í umhverfi sem hámarkar náms- og félagsþroska. Í samningnum er einnig kveðið á um að viðurkenna og auðvelda notkun táknmáls, punktaleturs, aukinna og óhefðbundinna samskipta og allra annarra aðgengilegra samskiptaleiða, -máta og -forma sem fatlað fólk kýs að nota í opinberum samskiptum.