12 febrúar 2026
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Úthlutað úr Rannsóknasjóði og Hvatningarverðlaun veitt framúrskarandi vísindamanni
Rannsóknaþing um opin og ábyrg vísindi fór fram í dag þar sem Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra afhenti Hvatningarverðlaun Rannsóknarsjóðs 2026 við hátíðlega athöfn. Verðlaunin hlaut Dr. Hrefna Dögg Gunnarsdóttir, lektor við Lagadeild Háskóla Íslands en rannsóknir hennar eru einkum á sviði heilbrigðisréttar og lögbundinna krafna til vísinda, m.a. í umhverfiserfðafræði.
Hrefna hefur unnið að rannsóknum á sviði lögfræði tengdri heilbrigðisrétti, vinnslu heilbrigðisgagna og annarra stórra gagnasafna sem notuð eru í vísindaskyni, persónuvernd, líftækni og gagnkvæmni í vísindarannsóknum. Hún hefur á skömmum tíma unnið brautryðjendastarf á sínu fræðasviði og hafa rannsóknir hennar, sem hafa m.a. birst hjá virtum alþjóðlegum útgefendum, haft áhrif á alþjóðlega umræðu um lögfræðileg, siðferðileg og samfélagsleg viðmið í tengslum við nýjar rannsóknaraðferðir á sviði líf- og erfðavísinda.
Það er mat dómnefndar að Dr. Hrefna Dögg Gunnarsdóttir sé framúrskarandi ungur vísindamaður sem sýnt hafi fram á sjálfstæði, frumleika og áræðni í rannsóknum og hafi unnið brautryðjendastarf á sínu fræðasviði. Hún hafi skapað væntingar um framlag í vísindastarfi sem treystir stoðir mannlífs á Íslandi og hafi miðlað sérþekkingu sinni, jafnt innanlands sem erlendis. Hrefna sé því verðugur handhafi Hvatningarverðlauna Rannsóknarsjóðs árið 2026.
Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs eru veitt vísindafólki sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað fram úr en markmiðið með þeim er að hvetja vísindafólk til dáða og vekja athygli almennings á gildi rannsókna og starfi vísindafólks.
Fjárfest í rannsóknum - 70 verkefni hljóta styrk úr Rannsóknasjóði
Á þinginu var tilkynnt um úthlutun styrkja til nýrra rannsóknaverkefna fyrir árið 2026. Alls bárust 414 gildar umsóknir í Rannsóknasjóð og voru 70 þeirra styrktar eða 17% umsókna. Sjóðurinn er í umsýslu Rannís sjá nánar hér.
Rannsóknasjóður er leiðandi samkeppnissjóður hér á landi og heyrir undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti. Sjóðurinn styrkir verkefni á öllum sviðum vísinda, allt frá styrkjum til doktorsnema til öndvegisstyrkja. Öndvegisstyrkir eru veittir til viðamikilla verkefna sem skara fram úr á sínu sviði og hafa alþjóðlega skírskotun.
Styrkveitingar til nýrra verkefna nema á þessu sinni rúmum 1.3 milljarði króna, en þar sem verkefni eru almennt til þriggja ára verður heildarkostnaður vegna þeirra tæplega 3.8 milljarðar króna á árunum 2026-2028.
„Öflugar rannsóknir og nýsköpun skipa veigamikinn sess í nýrri atvinnustefnu stjórnvalda sem nú er í mótun. Úthlutun dagsins í dag ber þess merki að við ætlum okkur að gera rannsóknum og nýsköpun hærra undir höfði. Mikilvægi þess blómlega starfs sem vísindafólk á Íslandi vinnur á hverjum degi skiptir sköpum. Ekki aðeins vegna þess að rannsóknir leiða til nýrrar þekkingar og framfara, heldur undirbyggja rannsóknir einnig vandaða stefnumótun stjórnvalda. Verkefnin sem hljóta styrk hér í dag eru til marks um bjarta framtíð svo ekki sé minnst á okkar færa vísindafólk líkt og Dr. Hrefnu Dögg Gunnarsdóttur sem hlaut hvatningaverðlaun sjóðsins í dag. Ég óska þeim innilega til hamingju og velfarnaðar í starfi,“ segir Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Yfirlit um skiptingu milli styrktegunda*
Öndvegisstyrkir (öll fagráð)
Alls bárust 25 umsóknir um öndvegisstyrki og voru 2 styrktar eða 8% umsókna.
|
Verkefnisstjóri |
Aðsetur |
Heiti |
ISK (1. ár) |
|
Hans Tómas Björnsson |
Háskóli Íslands - Heilbrigðisvísindasvið |
Kortlagning á sértækum kæliferli í spendýrafrumum |
60.625.000 |
|
Finnur Ulf Dellsén |
Háskóli Íslands - Hugvísindasvið |
Samstaða í vísindum |
44.785.000 |
Nýliðunarstyrkir (öll fagráð)
Alls bárust 29 umsóknir um nýliðunarstyrki og var 1 styrkt eða 3% umsókna.
|
Verkefnisstjóri |
Aðsetur |
Heiti |
ISK (1. ár) |
|
Guðjón Ólafsson |
Háskóli Íslands - Heilbrigðisvísindasvið |
Hlutverk þráðhaftsumritunar og frumustreitu í litningaóstöðugleika |
27.293.750 |
Verkefnisstyrkir
Alls bárust 163 umsóknir um verkefnisstyrki og voru 29 styrktar eða 18% umsókna.
Raunvísindi og stærðfræði (16%)
|
Verkefnisstjóri, aðalrannsakendur |
Aðsetur |
Heiti |
ISK (1. ár) |
|
Pavla Dagsson Waldhauserová |
Landbúnaðarháskóli Íslands |
Áhrif ryks á heimskautasvæðum |
29.086.248 |
|
Vala Hjörleifsdóttir |
Háskólinn í Reykjavík - Verkfræðideild |
SæLjós - hagnýting neðansjávar fjarskiptainnviða til jarðskjálftarannsókna |
25.391.250 |
|
Sigurður Ingi Erlingsson |
Háskólinn í Reykjavík - Verkfræðideild |
Samspil seglunar og flutningseiginleika í örvírum úr grannfræðilegum einangrurum |
29.602.855 |
|
Elvar Örn Jónsson |
Raunvísindastofnun Háskóla Íslands |
Staðbundin skölun og lágmörkun sjálfsvíxlverkunarleiðréttingar með samoka kjörsvigrúmum |
24.125.000 |
Verkfræði og tæknivísindi (19%)
|
Verkefnisstjóri, aðalrannsakendur |
Aðsetur |
Heiti |
ISK (1. ár) |
|
Luca Aceto, Anna Ingólfsdóttir, Elli Anastasiadi, Kim Guldstrand Larsen, Martin Zimmermann |
Háskólinn í Reykjavík - Tölvunarfræðideild |
Yfirrökfræði: tjáningarhæfni, eftirlitshæfni, og verkfæri (H.Lo) |
23.903.950 |
|
Hans Peter Reiser |
Háskólinn í Reykjavík - Tölvunarfræðideild |
FrostShield: Útskýranleg og sjálfvirk netvörn byggð á persónuverndarvöktun og vélanámi |
23.692.230 |
|
Yngvi Björnsson |
Háskólinn í Reykjavík - Tölvunarfræðideild |
Útskýranleg gervigreind og virkt vélnám í upplýstum leitaragentum |
25.238.625 |
|
Milad Kowsari, Benedikt Halldórsson |
Veðurstofa Íslands |
Ný jarðskjálftavárkort fyrir Suðvesturland með megindlegu mati á uppsafnaðri óvissu (EQSIGMA) |
30.237.500 |
|
Bing Wu |
Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið |
Jarðhitavatnsnám: endurheimt rúbídíns með blendingshimnuferli |
14.935.000 |
|
Valgerður Guðrún Halldórsdóttir |
Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið |
Kortlagning legs: Þrýstingsmat með ómun sem nýtt rannsóknarviðmið við mat á hnútum í legi, legslímuvillu, legslímukirtla- og vöðvavillu |
16.447.500 |
Náttúru- og umhverfisvísindi (19%)
|
Verkefnisstjóri, aðalrannsakendur |
Aðsetur |
Heiti |
ISK (1. ár) |
|
Isabel Pilar Catalan Barrio |
Landbúnaðarháskóli Íslands |
Samsetning og næringargildi fæðu grasbíta túndrunnar |
30.393.750 |
|
Alejandro Salazar Villegas |
Landbúnaðarháskóli Íslands |
Aðstoð við myndun lífrænnar jarðvegsskánar (BIOCRUST, lífskurn) við endurheimt vistkerfa |
14.862.600 |
|
Victor A. Albert |
Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið |
Erfðafræðileg uppbygging hraðrar aðlögunar í frumbyggjaplöntunni Honckenya peploides: Hvernig fjölföldun, misfjölföldun og tvíföldun knýja áfram velgengni hennar á eldfjallaströndum Íslands |
28.998.750 |
|
Brynhildur Davíðsdóttir, Kevin J Dillman |
Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið |
Að skapa gott líf innan vistfræðilegra takmarka jarðar |
26.042.500 |
Lífvísindi (22%)
|
Verkefnisstjóri, aðalrannsakendur |
Aðsetur |
Heiti |
ISK (1. ár) |
|
Guðmundur H Guðmundsson, Qiong Wang |
Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið |
Greining á virkniferlum í frumum fyrir nýja lyfjavísa gegn slímhimnubólgu í görn |
25.515.000 |
|
Stefán Þórarinn Sigurðsson |
Háskóli Íslands - Heilbrigðisvísindasvið |
Ísóform sértækt hlutverk MITF í að viðhalda stöðugleika erfðaefnisins |
22.842.500 |
|
Guðrún Valdimarsdóttir |
Háskóli Íslands - Heilbrigðisvísindasvið |
TGF-beta/SMAD boðleiðir í íferð næriþekjufruma í fylgju og í meðgöngueitrun |
24.462.500 |
|
Valur Emilsson, Þórarinn Guðjónsson |
Hjartavernd ses |
Innsýn í þróun krabbameina með sermispróteinum |
24.422.500 |
Klínískar rannsóknir og lýðheilsa (14%)
|
Verkefnisstjóri, aðalrannsakendur |
Aðsetur |
Heiti |
ISK (1. ár) |
|
Helga Zoega |
Háskóli Íslands - Heilbrigðisvísindasvið |
Örugg lyfjameðferð á meðgöngu: Skammtíma- og langtímaútkomur geðlyfja |
27.497.500 |
|
Jóhanna Gunnarsdóttir |
Háskóli Íslands - Heilbrigðisvísindasvið |
Innsýn í fylgjuþurrð með fylgjuvefjaskoðun til að bæta forspá um meðgöngueitrun og andvana fæðingar |
29.573.986 |
|
Edda Björk Þórðardóttir |
Háskóli Íslands - Heilbrigðisvísindasvið |
Heilsufarslegar afleiðingar langvarandi náttúruhamfara |
23.282.500 |
Félagsvísindi og menntavísindi (14%)
|
Verkefnisstjóri, aðalrannsakendur |
Aðsetur |
Heiti |
ISK (1. ár) |
|
Rúna Sif Stefánsdóttir, Ársæll Már Arnarsson, Vaka Rögnvaldsdóttir |
Háskóli Íslands - Menntavísindasvið |
Langtímarannsókn á andlegri heilsu, félagslegri vellíðan, líkamlegum þroska og afkastagetu ungra knattspyrnustúlkna |
24.636.300 |
|
Árni Kristjánsson |
Háskóli Íslands - Heilbrigðisvísindasvið |
Skynjun á mynstrum í umhverfinu í tíma og rúmi |
28.752.500 |
|
Gylfi Zoega |
Háskóli Íslands - Félagsvísindasvið |
Áhrif styttingar framhaldsnáms á æviferilinn |
18.023.750 |
|
Kathryn Margaret Crowe, Jóhanna Thelma Einarsdóttir, Þóra Másdóttir |
Háskóli Íslands - Heilbrigðisvísindasvið |
Orðaheimurinn batnandi fer |
28.562.412 |
|
Sigrún Ólafsdóttir |
Háskóli Íslands - Félagsvísindasvið |
Stafræn samfélög, tækni og gervigreind: Ísland í alþjóðlegum samanburð |
24.816.250 |
Hugvísindi og listir (27%)
|
Verkefnisstjóri, aðalrannsakendur |
Aðsetur |
Heiti |
ISK (1. ár) |
|
Gísli Rúnar Harðarson |
Háskóli Íslands - Hugvísindasvið |
Talað í trjám: Rannsóknir á skilum setningafræði og hljóðkerfisfræði |
23.570.000 |
|
Gavin Murray Lucas, Ágústa Edwald Maxwell, Árni Daníel Júlíusson, Douglas James Bolender, Megan Taylor Hicks |
Háskóli Íslands - Hugvísindasvið |
Sjálfstætt fólk? Íslensk heimili á löngu nítjándu öldinni |
26.677.500 |
|
Þórhallur Eyþórsson, Heimir Freyr Viðarsson |
Háskóli Íslands - Hugvísindasvið |
Málsambýli í eldri íslensku: Þáttur samfélagsgerðar og myndunar þéttbýliskjarna í málbreytingum |
18.943.750 |
Nýdoktorsstyrkir
Alls barst 73 umsókn um nýdoktorsstyrki og voru 15 þeirra styrktar eða 21% umsókna.
Raunvísindi og stærðfræði (25%)
|
Nýdoktor |
Aðsetur |
Heiti |
ISK (1. ár) |
|
Maarit Hannele Kalliokoski |
Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið |
(Leyni)gjóskulagatímatal byggt á rannsóknum á stöðuvatnaseti á Suðurlandi |
14.700.000 |
|
Thomas Jacky Louis Joel Gascard |
Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið |
Kosmísk dögun: Tækniþróun fyrir BISOU tilraunina og litrófsmælingar á örbylgjukliðnum |
14.749.995 |
Verkfræði og tæknivísindi (19%)
|
Nýdoktor |
Aðsetur |
Heiti |
ISK (1. ár) |
|
Meha Agrawal |
Háskólinn í Reykjavík - Verkfræðideild |
Hálfgreiningar- og tölvustýrð hönnunaraðferðafræði fyrir geislamyndandi loftnet fyrir ómönnuð loftför |
14.658.730 |
|
Arnar Már Viðarsson |
Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið |
Rannsókn á einangrurum með háan rafsvörunarstuðul fyrir SiC smára |
14.749.995 |
|
Seyedreza Hassanianmoaref |
Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið |
Gagnadrifnar og eðlisfræðilega upplýstar námsaðferðir: fyrir straum með svifögnum í órólegu flæði (DP4PL) |
14.745.000 |
Náttúru- og umhverfisvísindi (22%)
|
Nýdoktor |
Aðsetur |
Heiti |
ISK (1. ár) |
|
Andrea Pozzi |
Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið |
Hin dulda hlið þróunar: Breytingar á genanetum |
14.750.000 |
|
Laura Oller Lopez |
Háskóli Íslands - Stofnun Rannsóknasetra |
Eiturefni í háhyrningum: þverfagleg nálgun til að tengja eiturefnavistfræði og lífeðlisfræði |
14.425.000 |
Félagsvísindi og menntavísindi (30%)
|
Nýdoktor |
Aðsetur |
Heiti |
ISK (1. ár) |
|
Anton Lukashevich |
Háskóli Íslands - Heilbrigðisvísindasvið |
Andlit í mannþröng – sjónræn kóðun |
14.750.000 |
|
Olanrewaju Femi Olagunju |
Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið |
Stafrænt tæki fyrir áætlanagerð um sjálfbært fiskeldi: Leiðir til að auka hagkvæmni og markaðsstöðu í Afríku sunnan Sahara |
14.677.500 |
|
Magnús Örn Agnesar Sigurðsson |
Háskóli Íslands - Félagsvísindasvið |
Almannaþjónar mannaldar |
14.714.000 |
Hugvísindi og listir (21%)
|
Nýdoktor |
Aðsetur |
Heiti |
ISK (1. ár) |
|
Jeske Toorman |
Háskóli Íslands - Hugvísindasvið |
Tilvísun og merkingarlegt framsal: Nýjar tilraunakenndar rannsóknir á málfræðilegum flokkum |
14.622.500 |
|
Ashley Keaton |
Háskóli Íslands - Hugvísindasvið |
Málfræðimiðuð tækni í greiningu tal- og máltruflana þvert á tungumál |
14.647.865 |
|
Romina Werth |
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum |
Afhjúpun Hálfdanar rímna Eysteinssonar: Fræðileg greining og útgáfa |
14.749.155 |
|
Noemi Cubas Martin |
Háskóli Íslands - Hugvísindasvið |
Litadýrð Íslands afhjúpuð með litrófsrannsóknum, þar sem náttúruleg litarefni í íslenskum ullartextíl eru rannsökuð, allt frá Víkingaöld til nútímans |
14.042.500 |
|
Isabella Clarke |
Háskóli Íslands - Hugvísindasvið |
Eftirlíf Tristan: Konur og ást í miðalda norður |
14.750.000 |
Doktorsnemastyrkir
Alls bárust 124 umsóknir um doktorsnemastyrki og voru 23 styrktar eða 19% umsókna.
Raunvísindi og stærðfræði (27%)
|
Doktorsnemi |
Aðsetur |
Heiti |
Lengd (ár) |
ISK (1. ár) |
|
Sigrún Elísa Eyjólfsdóttir |
Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið |
Þróun orkuríks lífeldsneytis úr úrgangsolíum og metanóli |
3 |
10.416.000 |
|
Raghavendra Kshirsagar |
Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið |
Umfram MFCI: Líkanagerð fyrir gosstrók og |
3 |
10.416.665 |
|
Rafael Daníel Vias |
Raunvísindastofnun Háskóla Íslands |
Bayesískir rennslislyklar með mæliskekkju-hlutlíkan: Útvíkkun á almenna veldislyklalíkaninu. |
2 |
10.180.000 |
Verkfræði og tæknivísindi (17%)
|
Doktorsnemi |
Aðsetur |
Heiti |
Lengd (ár) |
ISK (1. ár) |
|
Gianmarco Dolino |
Háskólinn í Reykjavík - Verkfræðideild |
METAspine - Sjúklingasértæk gerviefni líkön til að rannsaka meinvörp í hrygg |
3 |
9.531.500 |
|
Liang Tian |
Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið |
Viðmiðunarmælingar á landgerðaþáttum yfir mismunandi upplausnir: Skalanlegt vinnuflæði fyrir greiningu á staðgenglum líffræðilegrar fjölbreytni í Bandaríkjunum og Evrópu |
1 |
10.416.660 |
|
Sara Camén |
Háskólinn í Reykjavík - Verkfræðideild |
Áhrif örplasts á orkubúskap við yfirborð jökla |
3 |
9.531.500 |
|
Hamed Davari |
Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið |
Ný eigindleg líkön af sterkhreyfingum jarðskjálfta fyrir verkfræðilegar þarfir |
1 |
10.410.000 |
Náttúru- og umhverfisvísindi (20%)
|
Doktorsnemi |
Aðsetur |
Heiti |
Lengd (ár) |
ISK (1. ár) |
|
Gabrielle Marie Valerie Laduree |
Hólaskóli - Háskólinn áHólum |
Svæðanotkun, fæðuatferli, félagskerfi og |
1 |
10.416.660 |
|
Anna Bára Másdóttir |
Náttúrufræðistofnun Íslands |
Svipfarsbreytileiki og stofnerfðamengjafræði íslenska heimskautarefsins (Vulpes lagopus) |
1 |
10.410.000 |
|
Brynhildur Magnúsdóttir |
Háskóli Íslands - Verkfræði- og náttúruvísindasvið |
Stofnerfðafræði og náttúrvernd íslenska hafarnarins |
1 |
10.410.000 |
Lífvísindi (29%)
|
Doktorsnemi |
Aðsetur |
Heiti |
Lengd (ár) |
ISK (1. ár) |
|
Gabriele Boretti |
Háskólinn í Reykjavík - Verkfræðideild |
3D-Mec(Omic): Þróun stærðfræðilíkans til að spá fyrir um myndun á 3D lífaprentaðs brjóskvefjar með sameindalíffræðilegum nálgunum án þess að skemma vefinn |
3 |
9.420.455 |
|
Vera Amanda Varis |
Háskóli Íslands - Heilbrigðisvísindasvið |
Áhrif seytinna æðaþelsþátta á framvindu brjóstakrabbameins með notkun æðaríks æxlingaprófs |
3 |
10.010.000 |
Klínískar rannsóknir og lýðheilsa (14%)
|
Doktorsnemi |
Aðsetur |
Heiti |
Lengd (ár) |
ISK (1. ár) |
|
Ida Maruotto |
Háskólinn í Reykjavík - Verkfræðideild |
Aldurstengt spálíkan fyrir slitgigt í hné |
3 |
9.531.500 |
|
Aníta Ósk Georgsdóttir |
Háskólinn í Reykjavík - Sálfræðideild |
Aukin þekking á hugrænni hrörnun með taugasálfræði og vélnámi: Fjölþætt nálgun byggð á íslenskum og sænskum gagnagrunnum |
3 |
9.531.500 |
Félagsvísindi og menntavísindi (21%)
|
Doktorsnemi |
Aðsetur |
Heiti |
Lengd (ár) |
ISK (1. ár) |
|
Brittany Marie Repella |
Háskóli Íslands - Menntavísindasvið |
Næra og Fræða – Fæðufærni, næringarfræðsla og fæðuóöryggi |
2 |
10.325.000 |
|
Lóa Guðrún Gísladóttir |
Háskóli Íslands - Menntavísindasvið |
Að byggja betri framtíð með því að efla velferð barna og foreldra: Mat og gildi foreldranámskeiðsins Tengjumst í leik á Íslandi |
3 |
9.990.000 |
|
Unnur Edda Garðarsdóttir |
Háskóli Íslands - Menntavísindasvið |
"Ég vil bara að einhver elski mig" Kynverund, ástarkraftur og gagnkynja ástir meðal ungs fólks í jafnréttisparadís |
1 |
10.410.000 |
|
Ahmed Nawaz |
Háskóli Íslands - Félagsvísindasvið |
Áskoranir við stjórnun friðlýstra svæða í fjöllum Norður-Pakistan: Greining á stjórnkerfum og áhrifum á sanngjarnra náttúruvernd og félags- og efnahagsþróun |
2 |
10.375.000 |
|
Guðrún María Þorsteinsdóttir |
Háskóli Íslands - Félagsvísindasvið |
Að lifa í óvissunni: Hvernig Grindvíkingar takast á við áhættu, brottflutninga og samfélag án staðar |
3 |
10.410.000 |
Hugvísindi og listir (14%)
|
Doktorsnemi |
Aðsetur |
Heiti |
Lengd (ár) |
ISK (1. ár) |
|
Gundega Skela |
Háskóli Íslands - Félagsvísindasvið |
Endurhugsun listasafna í gegnum stór tungumálalíkön: Rannsókn á Vasulka-safninu í Listasafni Íslands |
3 |
10.410.000 |
|
Xindan Xu |
Háskóli Íslands - Hugvísindasvið |
Um innri og ytri formgerð tilgangs- og afleiðingarsetninga með persónubeygðri sögn í íslensku |
2 |
10.410.000 |
|
Piergiorgio Consagra |
Háskóli Íslands - Hugvísindasvið |
Tveir íslenskir miðaldaþættir sem "exempla": Norna-Gests þáttr og Helga þáttr Þórissonar sem tvíþætt bókmenntaverk |
2 |
10.410.000 |
|
Jesper Greve Kristensen |
Háskóli Íslands - Hugvísindasvið |
Réttur til Hægri: hugmyndin um réttlæti á netsvæðum hægri öfgamanna. |
3 |
10.416.500 |
*Upphæðir geta breyst við samningagerð og eru birtar með fyrirvara um innsláttarvillur.