17 febrúar 2026
/
Heilbrigðisráðuneytið
Drög að reglugerð um skólaheilsugæslu til umsagnar
Heilbrigðisráðuneytið hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerð um skólaheilsugæslu. Sérstök reglugerð um skólaheilsugæslu er markvert nýmæli og í samræmi við áherslumál ráðherra um þjónustu við börn. Með henni verður sett fram skýr skilgreining á fyrirkomulagi skólaheilsugæslu, þeirri þjónustu sem í henni felst og hvernig henni skuli háttað.
Við stefnumótun um styrkingu þjónustunnar var litið til fyrirkomulags í nágrannalöndum, einkum Finnlandi sem hefur verið í fararbroddi á Norðurlöndum hvað varðar skipulag og umgjörð skólaheilsugæslu og samþættingu hennar við skólaþjónustu.
Skólaheilsugæsla gegnir lykilhlutverki í forvörnum og geðrækt barna. Með reglubundnum heilbrigðisskoðunum, markvissri heilbrigðisfræðslu, ráðgjöf og heilsueflingu er lögð áhersla á snemmtæka íhlutun og samfellu í þjónustu.
Samhliða gildistöku nýrrar reglugerðar verður unnið að bættri nýtingu starfstíma skólahjúkrunarfræðinga í skólum. Þá verður fræðsluefni endurskoðað með aukinni áherslu á líkamlega heilsu, tilfinningalæsi, sjálfshjálp, markvissa geðrækt í skólaumhverfi og sjálfsvígsforvarnir.
Efling forvarna og snemmtækrar greiningar ofbeldis gegn börnum
Í takt við samfélagsbreytingar er jafnframt unnið að því að efla forvarnir og snemmtæka greiningu ofbeldis gegn börnum. Í undirbúningi er skimun fyrir ofbeldi sem verður hluti af heilsuviðtölum í grunnskólum, með það að markmiði að hefja víðtæka innleiðingu á næsta skólaári. Markmiðið er að grípa börn strax þegar grunur vaknar og tryggja að viðeigandi úrræði taki við án tafar.
Síðustu tvö ár hefur verið unnið markvisst að innleiðingu og eflingu skólaheilsugæslu í framhaldsskólum. Reynslan sýnir að þörfin fyrir aðgengilega og sérhæfða þjónustu á því skólastigi er veruleg.
Í þessari vinnu hefur verið lögð áhersla á að styrkja stöðu skólaheilsugæslunnar sem mikilvægan hluta nærþjónustu við börn og ungmenni. Frekari þróun er í undirbúningi með það að markmiði að efla þjónustu við börn á skólaaldri með skýrari áherslum í reglugerðum, aukinni sérhæfingu skólahjúkrunarfræðinga, öflugri nærþjónustu í skólum og aukinni samlegð með skólaþjónustu um land allt. Markmiðið er að stuðningur við heilsu og vellíðan nemenda sé samfelldur og jafnt aðgengilegur óháð búsetu.
Heilbrigðisráðuneytið mun áfram vinna að frekari stefnumótun á sviði skólaheilsugæslu í samráði við hagaðila. Á þessu ári verður lögð sérstök áhersla á samþætta stefnumótun og áætlanagerð fyrir skólaheilsugæslu í bæði grunn- og framhaldsskólum. Gert er ráð fyrir að frekari ákvæði reglugerðarinnar verði útfærð samhliða þeirri vinnu.
Athygli er vakin á því að frestur til að skila umsögnum í samráðsgátt er til 2. mars næstkomandi.