17 febrúar 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Drög að þingsályktunartillögu vegna málefna innflytjenda lögð fram til samráðs
Drög að þingsályktunartillögu um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026-2029 er nú til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.
Samkvæmt lögum um málefni innflytjenda skal ráðherra leggja fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda til fjögurra ára í senn að fenginni umsögn annarra ráðuneyta, stofnana, Vinnumálastofnunar og innflytjendaráðs.
Í tillögunni skal kveða á um verkefni sem hafa það að markmiði að stuðla að samfélagi þar sem allir einstaklingar geta verið virkir þátttakendur óháð þjóðerni og uppruna.
Í drögunum að þingsályktunartillögunni er að finna fimm megináherslur:
- Aðgerðir um íslenskunám og notkun tungumálsins í daglegu lífi
- Aðgerðir um mat á námi og þátttöku á vinnumarkaði
- Aðgerðir um upplýsingaþjónustu, samfélagsfræðslu og þátttöku
- Aðgerðir um sérstaklega viðkvæma hópa
- Aðgerðir um tölfræði og rannsóknir
Aðgerðirnar sjálfar eru 24 talsins. Þingsályktunartillagan var birt í samráðsgáttinni þann 10. febrúar sl. og frestur til að gera athugasemdir er til 24. febrúar nk.