17 febrúar 2026
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Holtavirkjun og Skrokkölduvirkjun samþykktar í orkunýtingarflokk
Tillaga umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra til þingsályktunar um rammaáætlun var samþykkt á Alþingi í dag. Við þetta færast tvær vatnsaflsvirkjanir á Suðurlandi í orkunýtingarflokk, annars vegar Holtavirkjun í Þjórsár og Skrokkölduvirkjun við Sprengisandsleið.
Til umfjöllunar voru jafnframt kostir sem verkefnisstjórn rammaáætlunar hafði lagt til að færu í verndarflokk, Kjalölduveita sunnan Þjórsárvera og virkjunarkostir í Héraðsvötnum í Skagafirði. Ráðherra lagði til að þessir kostir héldust áfram í biðflokki og var það samþykkt. Þá verður Urriðafossvirkjun áfram í biðflokki samkvæmt tillögu meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar meðan frekari rannsóknir fara fram í tengslum við mótvægisaðgerðir til verndar villta laxastofninum í Þjórsá.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Loksins komum við Holtavirkjun og Skrokkölduvirkjun í orkunýtingarflokk. Á síðustu tíu árum hefur aðeins ein vatnsaflsvirkjun ratað í nýtingarflokk rammaáætlunar, en nú er Alþingi að gefa grænt ljós á tvo mikilvæga vatnsaflskosti sem komast til framkvæmda á næstu árum.“