17 febrúar 2026
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Opið fyrir umsóknir í List fyrir alla - Barnamenning um allt land!
List fyrir alla auglýsir eftir umsóknum um listviðburði eða verkefni á sviði barnamenningar fyrir grunnskólabörn. Starfandi listamenn, stofnanir og aðrir þeir er sinna barnamenningu á einhvern hátt geta sent inn umsókn. Til barnamenningar teljast verkefni á sviði lista og menningar sem unnin eru fyrir börn og/eða með virkri þátttöku barna.
Markmið er að jafna aðgengi grunnskólabarna að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag. Leitast er við að gera allar listgreinar sýnilegar innan verkefnisins eins og kostur er. List fyrir alla er verkefni á vegum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins.
Umsóknarfrestur fyrir skólaárið 2026 – 2027 er 22. mars 2026.
Valnefnd metur umsóknir og gildi þeirra með hliðsjón af því hvernig þær falla að markmiðum verkefnisins List fyrir alla. Listviðburðir og verkefni skulu í öllum tilvikum vera unnin af fagfólki og metnaði. Við mat á umsóknum er valnefnd heimilt að leita umsagnar, gerist þess þörf.
Ákvörðun um úthlutun mun liggja fyrir í maí ár hvert.
Nánari upplýsingar um greiðslur og fyrirkomulag má fá hjá verkefnastjóra List fyrir alla, [email protected]