17 febrúar 2026
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Umhverfissjóður sjókvíaeldis auglýsir eftir umsóknum fyrir árið 2026
Umhverfissjóður sjókvíaeldis auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna og verkefna sem styðja við markmið sjóðsins um lágmörkun umhverfisáhrifa af völdum sjókvíaeldis, samkvæmt reglugerð nr. 874/2019 um Umhverfissjóð sjókvíaeldis.
Til úthlutunar á árinu 2026 eru kr. 170.400.000.
Stofnanir, fiskeldisfyrirtæki, einstaklingar og lögaðilar geta sótt um styrki til sjóðsins.
Hlutverk sjóðsins er að greiða kostnað við rannsóknir vegna burðarþolsmats og vöktunar. Sjóðurinn getur jafnframt greitt kostnað við önnur verkefni sem stjórn sjóðsins ákveður eftir því sem fjármagn leyfir. Verkefnum er forgangsraðað í samræmi við framangreint hlutverk og áherslur stjórnar hverju sinni.
Stjórn sjóðsins leggur faglegt mat á allar umsóknir, forgangsraðar verkefnum og ákveður styrkfjárhæð sbr. 11. gr. reglugerðar nr. 874/2019. Við úthlutun 2026 mun stjórn hafa lögbundið hlutverk sjóðsins til grundvallar úthlutunar en auk þess horfa sérstaklega til verkefna sem draga úr umhverfisáhrifum sjókvíaeldis og verkefna sem efla mótvægisaðgerðir gegn þeim. Að þessu sinni verður áhersla lögð á verkefni sem hægt er að vinna innan árs.
Vakin er athygli á því að loka- og framvinduskýrslur verkefna sem sjóðurinn styrkir skulu almennt vera aðgengilegar á heimasíðu sjóðsins, sbr. starfsreglur stjórnar. Aðrar upplýsingar í umsóknum er varða fjárhag eða viðskiptahagsmuni umsækjenda og annarra einstaklinga og lögaðila er tengjast verkefnum á vegum sjóðsins skulu meðhöndlaðar sem trúnaðarmál að því marki sem lög takmarka ekki.
Umsóknarfrestur er til miðnættis föstudaginn 20. mars 2026.
Umsóknum er skilað rafrænt á eyðublaðavef Stjórnarráðsins. Nánari upplýsingar og úthlutunarreglur má finna neðar á síðunni.