17 febrúar 2026

/

Heilbrigðisráðuneytið

Uppbygging og efling réttar- og öryggisgeðþjónustu á Landspítala

{image.Description}
Réttar- og öryggisgeðþjónusta Landspítala

Nú stendur yfir stórt og viðamikið verkefni í réttar- og öryggisgeðþjónustu á Landspítala með það að markmiði að styrkja þjónustu við einstaklinga með flókinn og alvarlegan geðrænan vanda.  Þörf fyrir þessa þjónustu hefur farið vaxandi á síðustu árum og því nauðsynlegt  að ráðast í umbætur í starfseminni til að mæta henni.   Verið er að stíga stór skref í þeirri vegferð með uppbyggingu á nýrri legudeild innan réttar- og öryggisgeðþjónustu spítalans, endurnýjun á húsnæði núverandi öryggisgeðdeildar samhliða eflingu göngudeildarþjónustu. Með breytingunum er gert ráð fyrir að reknar verði þrjár átta rúma legudeildir innan réttar- og öryggisgeðþjónustu. Göngudeildarþjónustunni verður einnig breytt í þverfaglegt samfélagsgeðteymi en sú nálgun hefur gefist vel fyrir sambærilegan hóp notenda hjá nágrannalöndum.

Tilfærsla geðheilsuteymis fangelsa til Landspítala

Sem hluti af þessu verkefni er unnið að flutningi geðheilsuteymis fangelsa frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til Landspítala þann 1. maí 2026.  Markmið tilfærslunnar er að styrkja geðheilbrigðisþjónustu við fanga ekki síst þá sem eiga við alvarlegan geðrænan vanda að stríða með öflugu geðteymi, skýrari ábyrgðarlínum, einfaldari þjónustuferlum og bættri samfellu í þjónustu á meðan á afplánun stendur og þegar þjónusta flyst á milli kerfa.

Landspítali hefur átt í góðu og reglubundnu samstarfi við geðheilsuteymi fangelsa og fangelsisyfirvöld um geðheilbrigðisþjónustu við fanga. Samstarfið hefur meðal annars falist í samráði um þjónustu við einstaklinga með flókinn geðrænan vanda og þróun verklags eftir því sem við á.

Landspítali og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafa einnig verið í góðu samstarfi til margra ára.  Það hefur m.a. leitt af sér sameiginlega verkferla sem snúa að samvinnu heilbrigðisþjónustunnar og lögreglunnar í flóknum málum til að tryggja öryggi og þjónustu. 

Með auknu samstarfi stofnana og stjórnvalda hefur geðheilbrigðisþjónusta í fangelsum verið stórlega efld á síðustu fjórum til fimm árum. Áfram eru þó verkefni sem kalla á frekara stefnumótandi samtal, ekki síst þegar kemur að þjónustu við fólk sem vistast í fangageymslum lögreglu um land allt. Úttekt umboðsmanns Alþingis bendir á að þar séu til staðar skýr tækifæri til úrbóta og að þörf sé á samhæfðri nálgun milli kerfa. Slíkt kallar á samtal milli viðeigandi stofnana og ráðuneyta, með það að markmiði að tryggja viðunandi heilbrigðisþjónustu fyrir þennan hóp.

Í meðfylgjandi myndbandi Landspítala er rætt við Nönnu Briem, framkvæmdastjóra geðþjónustu Landspítala, Halldóru Friðgerði Víðisdóttur, forstöðuhjúkrunarfræðing geðþjónustu, og Eyrúnu Thorstensen, deildarstjóra á réttargeðdeild.