18 febrúar 2026
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Úthlutun úr Menntarannsóknasjóði
Fimm rannsóknarverkefni hlutu styrk úr Menntarannsóknasjóði að heildarupphæð 148,5 m.kr.
Markmið menntarannsóknasjóðs er að styrkja stoðir hagnýtra menntarannsókna, auka tækifæri til að skapa og miðla þekkingu til framþróunar og farsældar í skólastarfi og styðja við framkvæmd menntastefnu.
Úthlutunarnefnd skipuð fulltrúum mennta- og barnamálaráðuneytis, Kennarasambands Íslands, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samstarfsnefndar háskólastigsins mat umsóknir og gerði tillögu til mennta- og barnamálaráðherra um styrki.
Eftirfarandi verkefni hljóta styrk að upphæð 29,7 m.kr. hvert:
- Guðrún Ragnarsdóttir, menntavísindasvið, HÍ: Að efla nám og kennslu með markvissri leiðsögn og ráðgjöf: Heildstæð íhlutunarrannsókn í leik-, grunn- og framhaldsskólum.
- Hannes Ottósson, menntavísindasvið, HÍ: Framtíð grunnskóla á Íslandi á tímum spunagreindar: Athafnakostir, læsi og hæfni kennara.
- Sara Margrét Ólafsdóttir, menntavísindasvið, HÍ: Stafræn tækni í lífi barna (STÍL).
- Eva Harðardóttir, menntavísindasvið, HÍ: Menntun til hnattrænnar borgaravitundar í íslenskum UNESCO-framhaldsskólum: Efling náms- og félagsumhverfis með þátttöku kennara og nemenda.
- Valgerður S. Bjarnadóttir, menntavísindasvið, HÍ: Framhaldsskóli á tímum samfélagslegra áskorana: Að virkja gagnrýna hugsun og ábyrga þátttöku í lýðræðissamfélagi.