20 febrúar 2026
/
Innviðaráðuneytið
Jöfnunarsjóður greiðir 139 m.kr. viðbótarframlag vegna tónlistarnáms
Alþingi samþykkti í desember sl. tillögu ríkisstjórnarinnar um fjáraukalög IV fyrir árið 2025 þar sem m.a. er kveðið á um 290 m.kr. hækkun á framlagi ríkisins til eflingar tónlistarfræðslu árið 2025.
Af þeirri upphæð mun Jöfnunarsjóður sveitarfélaga úthluta 139 m.kr. í samræmi við 1. gr. samkomulags ríkis og sveitarfélaga um stuðning við tónlistarnám og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms. Framlaginu er ætlað að renna til greiðslu kennslukostnaðar nemenda í framhaldsnámi í hljóðfæraleik og söng ásamt miðnámi í söng. Greiðslur Jöfnunarsjóðs munu berast sveitarfélögum í lok febrúar í formi eingreiðslu.
Eftirstöðvum af 290 m.kr. hækkun ríkisframlagsins, þ.e. 151 m.kr., verður ráðstafað af mennta- og barnamálaráðuneytinu í sértæk verkefni.