20 febrúar 2026

/

Heilbrigðisráðuneytið

Til umsagnar: Aðgerðaáætlun um sjúkraflutninga og bráðaþjónustu

{image.Description}
Mynd: Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisráðuneytið hefur birt til umsagnar í samráðsgátt, drög að aðgerðaáætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan heilbrigðisstofnana til ársins 2030. Umsagnarfrestur er til 4. mars næstkomandi.

Áætlunin er unnin af vinnuhópi, skipuðum breiðum hópi hagaðila og fagfólki sem tengist málefnum sjúkraflutninga og bráðaþjónustu um allt land. Hópurinn hóf störf haustið 2025. Í starfi sínu studdist hann við stefnu um bráðaþjónustu og sjúkraflutninga til ársins 2030 og heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Vinnuhópurinn hefur kynnt aðgerðaáætlunina fyrir heilbrigðisráðherra og hér með er hún birt til umsagnar í samráðsgátt.

Markmið áætlunarinnar er að efla gæði og öryggi bráðaþjónustu um allt land og leggja grunn að áframhaldandi þróun öflugrar, samræmdrar og sjúklingamiðaðrar bráðaþjónustu á Íslandi til framtíðar.