23 febrúar 2026

/

Utanríkisráðuneytið

Atvinnuvegaráðuneytið

Ísland gestgjafi alþjóðlegs sérfræðingafundar Sameinuðu þjóðanna um fiskveiðistjórnun

{image.Description}
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra ávarpar fundinn í Hörpu í morgun.

Alþjóðlegur sérfræðingafundur um fiskveiðistjórnun hófst í Hörpu í morgun og stendur dagana 23.-27. febrúar þar sem koma saman nærri 150 sérfræðingar frá rúmlega 60 ríkjum, auk fulltrúa alþjóðastofnana og annarra hagsmunaaðila. Þátttakendur starfa víða innan stjórnkerfa ríkja og hafa þannig umtalsverð áhrif á mótun stefnu og framkvæmd fiskveiðistjórnunar, bæði innan sinna landa og á vettvangi alþjóðasamstarfs.

Fundurinn er formlegur vettvangur á vegum Sameinuðu þjóðanna og er hluti af starfi Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna um fiskveiðistjórnun (FAO COFI Sub-Committee on Fisheries Management). Ísland gegnir nú formennsku í þessari undirnefnd til tveggja ára en nefndin er nýstofnaður vettvangur og er ætlað að verða leiðandi alþjóðlegur umræðuvettvangur um tæknileg og stefnumótandi málefni fiskveiðistjórnunar.

„Formennska Íslands felur í sér einstakt tækifæri til að leggja af mörkum til mótunar alþjóðlegrar stefnu á þessu mikilvæga sviði og til að efla samstarf við önnur ríki sem leggja áherslu á ábyrga og sjálfbæra nýtingu hafsins,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Þá gefst einnig mikilvægt tækifæri á fundinum að kynna íslenska nálgun að fiskveiðistjórnun, sem byggir á vísindalegri ráðgjöf, skýru regluverki og langtímasýn um sjálfbærni. Fundurinn styrkir einnig stöðu Íslands sem virks og áhrifamikils þátttakanda í alþjóðlegri stefnumótun í málefnum hafsins.“

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra ávarpaði fundinn í upphafi hans í dag. „Sem fyrr leggur Ísland áherslu á mikilvægi alþjóðlegs samstarfs, sérstaklega í gegnum Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna. FAO hefur mótað alþjóðleg viðmið um ábyrgar fiskveiðar og gegnir lykilhlutverki í gagnaöflun, samhæfingu og baráttu gegn ólöglegum veiðum,“ sagði Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra í ávarpi sínu. „Ísland mun áfram taka virkan þátt í alþjóðlegri stefnumótun um málefni hafsins, m.a. innan ramma hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna. “

Hefð er fyrir því að fundir fiskimálanefndar FAO séu haldnir í heimaríkjum formennskuríkja. Fyrsti fundur undirnefndarinnar var haldinn rafrænt í janúar 2024, en fundurinn í Reykjavík er fyrsti staðfundur nefndarinnar. Fundurinn er haldinn með stuðningi frá stjórnvöldum og samstarfsaðilum.

Undirnefnd fiskimálanefndar Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna um fiskveiðistjórnun (FAO COFI Sub-Committee on Fisheries Management) er nýlegur alþjóðlegur samstarfsvettvangur sem var stofnaður til að efla faglega og tæknilega umræðu um stjórnun fiskveiða á heimsvísu. Hlutverk undirnefndarinnar er að fjalla um megináskoranir og bestu starfsvenjur í fiskveiðistjórnun, styðja við innleiðingu alþjóðlegra viðmiða og leiðbeininga, og efla samræmda nálgun ríkja að sjálfbærri nýtingu lifandi auðlinda hafsins.

Undirnefndin starfar undir fiskimálanefnd FAO (Committee on Fisheries – COFI), sem er einn mikilvægasti alþjóðlegi stefnumótunarvettvangurinn á sviði fiskveiða og fiskeldis. Markmið undirnefndarinnar er að styrkja vísindalegan og tæknilegan grunn ákvarðanatöku, efla samstarf ríkja og stuðla að ábyrgri fiskveiðistjórnun sem tryggir verndun fiskistofna, fæðuöryggi og sjálfbæra nýtingu hafsins til langs tíma.