23 febrúar 2026

/

Heilbrigðisráðuneytið

Mikilvægar upplýsingar um berkla og berklasmit

{image.Description}
Mynd af vef embættis landlæknis

Flestir hafa heyrt um berkla sem alvarlegan lungnasjúkdóm, en færri vita að margir sem komast í snertingu við bakteríuna veikjast aldrei. Þessir einstaklingar eru með berklasmit og það er ekki smitandi. Heilbrigðisráðuneytið vekur athygli á upplýsingum sem sóttvarnalæknir hefur tekið saman um berkla, hvernig þeir smitast, einkenni, greiningu, meðferð og forvarnir. 

Berklar og berklasmit – hvað þarftu að vita?

Í samantekt sóttvarnalæknis er farið yfir alla helstu þætti sem mikilvægt er að vita um berkla og berklasmit, m.a. er þar greinargott yfirlit um muninn á berklasmiti og berklaveiki, hvernig smit verður og hvenær á að leita sér aðstoðar.