23 febrúar 2026
/
Heilbrigðisráðuneytið
Styrking lágþrepageðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og foreldra
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur tryggt 53 milljónir króna til næstu þriggja ára til að innleiða á landsvísu stafræna heilbrigðistæknilausn sem valdeflir foreldra barna á aldrinum 5 – 12 ára með kvíðavanda, með gagnreyndum aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar. Lausnin er fullþróuð og hefur verið ákveðið að fela Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins tímabundna ábyrgð á stjórnun verkefnisins og faglegri umgjörð þess á landsvísu. Verkefnið hefur fengið heitið FLIKK – Netmeðferð fyrir foreldra barna með kvíða.
Undirbúningur að verkefninu hófst árið 2023 sem samstarfsverkefni Háskólans í Reykjavík og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem heilbrigðisráðuneytið styrkti með 70 milljóna króna framlagi. Verkefnið byggist á hugrænni atferlismeðferð þar sem foreldrum barna með kvíðaröskun eru kenndar aðferðir til að hjálpa börnum sínum að ná tökum á kvíða. Meðferðin er lágþröskuldaþjónusta sem krefst ekki sjúkdómsgreiningar til þess að tryggja tímanlega þjónustu, svokallaða snemmtæka íhlutun.
Stafræn lausn - aðgengileg þjónusta óháð búsetu
Meðferð eins og hér um ræðir er gagnreynt úrræði og hefur verið veitt hér á landi um nokkurt skeið með góðum árangri. Það sem er nýmæli er að nýta stafrænar lausnir við meðferðina sem gerir þjónustuna aðgengilega öllum, óháð búsetu og fólk getur nálgast hana hvenær sem því hentar best. Verkefnið byggist á niðurstöðum nýlegra rannsókna á meðferð við kvíðaröskunum barna og þróun stafrænna heilbrigðislausna.
Liður í aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum
Þróun og innleiðing þessa lágþröskuldaúrræðis fellur að stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til ársins 2027, þar sem m.a. er kveðið á um aðgerð sem felst í því að þróa greitt aðgengi að ráðgjöf fyrir foreldra vegna geðheilsu barna þeirra (1.A.6.) og að efla nærþjónustu og fyrsta stigs heilbrigðisþjónustu vegna vægs til miðlungs alvarlegs geðræns vanda, jafnt barna sem fullorðinna (4.A.3.).
Hlutverk Heilsubrúar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Tímabundin verkefnastjórn þjónustunnar sem Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur verið falin felst í eftirtöldum þáttum:
- Að veita fagaðilum á landsvísu handleiðslu
- Styðja við meðferð einstakra foreldra ef þess gerist þörf
- Tryggja faglega og miðlæga umgjörð verkefnisins á landsvísu
- Þróa snemmtæk úrræði fyrir börn með geðrænar áskoranir, m.a. með fræðslu, námskeiðum, hópmeðferðum og stafrænum meðferðarúrræðum
Nánari upplýsingar á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins