24 febrúar 2026
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Fjárfestingastuðningur í nautgriparækt
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um fjárfestingastuðning í nautgriparækt í samræmi við reglugerð um stuðning við nautgriparækt nr. 348/2022, VIII. kafla.
Umsóknum um fjárfestingastuðning vegna framkvæmda á árunum 2025-2026 skal skilað inn rafrænt á Afurð eigi síðar en 31. mars.
Markmið stuðningsins er að hraða því að framleiðendur standist kröfur samkvæmt gildandi reglugerð um velferð nautgripa.
Stuðningur er veittur vegna eftirfarandi framkvæmda:
- Nýframkvæmda
- Endurbóta á eldri byggingum
Fylgiskjöl sem skila þarf með umsókn eru:
- Sundurliðuð kostnaðar- og framkvæmdaráætlun með tímasettri verkáætlun.
- Byggingarleyfi eða staðfesting byggingarfulltrúa um að byggingarleyfis sé ekki krafist vegna framkvæmdar.
- Samþykktar teikningar ef við á.
- Leyfi þinglýstra eigenda jarðar fyrir framkvæmd.
Fjárfestingastuðningur fyrir hvern framleiðanda getur að hámarki numið 40% af stofnkostnaði ef heildarkostnaður fer yfir eina milljón króna.