24 febrúar 2026

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Fjárfestingastuðningur í sauðfjárrækt

{image.Description}
DL

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um fjárfestingastuðning í sauðfjárrækt í samræmi við reglugerð um stuðning við sauðfjárrækt nr. 144/2022, V. kafla.

Umsóknum um fjárfestingastuðning vegna framkvæmda á árunum 2025-2026 skal skilað inn rafrænt á Afurð eigi síðar en 15. mars.

Markmið stuðningsins er að stuðla að bættum aðbúnaði sauðfjár og hagkvæmari búskaparháttum.

Stuðningur er veittur vegna eftirfarandi framkvæmda:

  • Nýframkvæmda
  • Endurbóta á eldri byggingum

Fylgiskjöl sem skila þarf með umsókn eru:

  • Sundurliðuð kostnaðar- og framkvæmdaráætlun með tímasettri verkáætlun.
  • Byggingarleyfi eða staðfesting byggingarfulltrúa um að byggingarleyfis sé ekki krafist vegna framkvæmdar.
  • Samþykktar teikningar ef við á.
  • Leyfi þinglýstra eigenda jarðar fyrir framkvæmd.

Fjárfestingastuðningur fyrir hvern framleiðanda getur að hámarki numið 40% af stofnkostnaði ef heildarkostnaður fer yfir eina milljón króna.