25 febrúar 2026
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Stuðningur við Ævintýrabúðir Glóar
Að gefnu tilefni er vakin athygli á því að mennta- og barnamálaráðuneytið hefur ekki tekið ákvörðun um fjárveitingu til Ævintýrabúða Glóar í sumar.
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur verið í reglulegum samskiptum við Gló frá því um miðja síðustu viku þar sem stuðningsfélagið var upplýst um að málið væri í vinnslu og niðurstöðu að vænta á næstunni. Engin skilaboð komu frá ráðuneytinu þess efnis að það ætlaði ekki að styðja áfram við verkefnið.