26 febrúar 2026

/

Heilbrigðisráðuneytið

Heyrnar- og talmeinastöðin lögð niður 1. maí og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins tekur við verkefnum hennar

{image.Description}
Mynd: Heilbrigðisráðuneyti
Alþingishúsið

Heyrnar- og talmeinastöð Íslands verður lögð niður 1. maí næstkomandi og tekur Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins við verkefnum hennar og þjónustuþegum. Frumvarp heilbrigðisráðherra þessa efnis hefur verið samþykkt á Alþingi. Starfsmenn Heyrnar- og talmeinastöðvar verða starfsmenn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins með sömu ráðningarkjörum og áður.

Starfsmenn Heyrnar- og talmeinastöðvar eru að jafnaði 25 og er þetta ein minnsta stofnun heilbrigðisráðuneytisins, sett á fót með lögum frá Alþingi árið 1978. Starfsemi Heyrnar- og talmeinastöðvar og fjöldi stöðugilda við stofnunina hefur ekki þróast í takt við aukna eftirspurn eftir heyrnar- og talmeinaþjónustu, heyrnarmælingum og þjónustu vegna heyrnartækja og hefur starfsemi annarra söluaðila heyrnartækja og sjálfstætt starfandi heyrnarfræðinga aukið úrval og bætt aðgengi að þjónustu fyrir heyrnarskerta. Lögin sem Alþingi hefur samþykkt að fella brott gera hins vegar ráð fyrir því að stofnunin sé meginþjónustuaðili við heyrnarskerta,heyrnarlausa og þá sem eru með heyrnar- og talmein, sem er ekki lengur raunin. Áætlað er að 14,3% landsmanna séu með væga til mjög alvarlega heyrnarskerðingu, þar af um tólf þúsund manns með miðlungs til alvarlega heyrnarskerðingu sem krefst aðkomu sérfræðinga. Auk þess eru skýr tengsl milli hækkandi aldurs og heyrnarskerðingar og því má gera ráð fyrir að hérlendis muni um 35 þúsund manns þurfa á einhvers konar heyrnarþjónustu að halda árið 2030.

Flutningur verkefna Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar til nýrrar einingar innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins samhliða  niðurlagningu stofnunarinnar felur í sér að heilbrigðisþjónusta sem stofnunin hefur veitt þeim sem glíma við talmein, eru með heyrnarskerðingu eða heyrnarlausir,  verður veitt á grundvelli laga um heilbrigðisþjónustu og í samræmi við skilgreiningu fyrsta-, annars- og þriðja stigs heilbrigðisþjónustu. Heilsugæslustöðvar munu sinna fyrsta stigi þjónustunnar, annars stigs þjónusta skiptist milli sjálfstætt starfandi aðila og nýrrar  einingar innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, og Landspítali mun áfram sjá um þriðja stigs heilbrigðisþjónustu. Þannig er lögð áhersla á að tryggja aðkomu hins opinbera að þjónustu við einstaklinga með flóknari sjúkdómsmynd og alvarlegri heyrnarskerðingu, ásamt þjónustu við þá einstaklinga sem þurfa á ígræðslu eða öðrum heyrnarbætandi aðgerðum að halda. Við niðurlagningu stofnunarinnar verður þó lítil breyting fyrir þá sem sækja þjónustu hennar, en Heyrnar- og talmeinastöð er nú þegar staðsett í húsnæði heilsugæslunnar í Árbæ og verður þar áfram.