27 febrúar 2026

/

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Frumvarpsdrög um rýmkun á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóða í samráðsgátt

{image.Description}
Eydís Eyjólfsdóttir

Drög að frumvarpi um breytingar á lagaákvæðum sem gilda um magntakmarkanir sem lífeyrissjóðum er gert að fylgja við fjárfestingar hafa verið birt í samráðsgátt. Frumvarpið tekur til breytinga á ákvæðum um fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða með það að markmiði að bæta framkvæmd núgildandi reglna og styrkja umgjörð fjárfestinga sjóðanna.

Áform um fyrirhugaðar breytingar voru birt 9. febrúar sl. Efni frumvarpsdraganna er í samræmi við áformin að því frátöldu að horfið var frá því að leggja til boðaðar breytingar á ákvæðum sem varða tryggingastærðfræðinga.