27 febrúar 2026

/

Heilbrigðisráðuneytið

Skipulagning nýrrar bráðamatsdeildar Landspítala í Fossvogi

Nú standa yfir framkvæmdir við Landspítala í Fossvogi, þar sem innan skamms verður opnuð bráðamatsdeild í nýrri viðbyggingu við bráðamóttöku spítalans. Deildin er viðbót við bráðaþjónustu Landspítala og er ætlað að dreifa álagi þannig að betur verði hægt að ráða við vaxandi verkefni. Skipulag deildarinnar verður að breskri fyrirmynd og hafa sérfræðingar þaðan verið Landspítala innan handar við undirbúning. 

Fjallað er um undirbúning að skipulagningu og opnun deildarinnar í frétt á vef Landspítalans og í myndbandi þar sem rætt er við Rafn Benediktsson, framkvæmdastjóra bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítala, Vicky Price, forseta Félags bráðalyflækna í Bretlandi, Bethany Griffith bráðalyflækni og Hannah Hegarty, sérfræðing í hjúkrun.