27 febrúar 2026

/

Utanríkisráðuneytið

Tvíhliða pólitískt samráð Íslands og Kenía

{image.Description}
Fulltrúar utanríkisráðuneyta Íslands og Kenía
Ísland og Kenía héldu í dag sitt fyrsta tvíhliða pólitíska samráð í utanríkisráðuneytinu. Anna Hjartardóttir, skrifstofustjóri alþjóðapólitískra málefna, leiddi samráðið fyrir hönd Íslands.

Samskipti Íslands og Kenía byggja á traustum grunni og hafa þróast á löngum tíma. Ríkin hafa átt gott samstarf í hátt í hálfa öld, einkum á sviði þróunarsamvinnu, sem hefur skapað sterkan grunn fyrir frekara samstarf.

Meðal umræðuefna var tvíhliða samband ríkjanna og leiðir til að efla það enn frekar í þágu beggja ríkja. Lögð var áhersla á mikilvægi aukinnar samvinnu og samtals milli ríkja þvert á heimssvæði á tímum vaxandi alþjóðlegra áskorana.

Fjallað var um samstarf ríkjanna á sviðum endurnýjanlegrar orku, bláa hagkerfisins, loftslagsmála, nýsköpunar, menntamála, ferðaþjónustu og fraktflutninga. Ljóst er að ýmis tækifæri eru til aukins samstarfs, ekki síst á sviði orkumála og með gerð tvísköttunarsamnings og á grunni loftferðasamnings. Einnig var rætt um sjávarútvegsmál, sér í lagi varðandi aukið samstarf í tengslum við sjálfbæran sjávarútveg. Sérstök umfjöllun var um starfsemi GRÓ, þar á meðal kynningar á jarðhitaskóla og jafnréttisskóla GRÓ. Hvergi hafa nemendur verið fleiri í starfi GRÓ frá upphafi en frá Kenía. Það hefur stuðlað að uppbyggingu þekkingar og færni á lykilsviðum. Kenía er í dag meðal fremstu ríkja heims á sviði jarðvarma og hefur náð umtalsverðum árangri, sem skapar frekari tækifæri til samstarfs og sameiginlegrar framþróunar.

Þá var einnig rætt um fjölþjóðlegt samstarf, meðal annars innan Sameinuðu þjóðanna og þróun og horfur í alþjóðamálum, þar á meðal áhrif innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu.

Í lok samráðsins var undirstrikaður sameiginlegur vilji ríkjanna til að efla enn frekar samskipti og samstarf á fjölbreyttum sviðum til framtíðar.