27 febrúar 2026

/

Forsætisráðuneytið

Vatnaskil í þjóðlendumálum – ráðstefna í Safnahúsinu 12. mars

{image.Description}

Forsætisráðuneytið stendur fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni Vatnaskil í þjóðlendumálum. Á ráðstefnunni sem haldin verður fimmtudaginn 12. mars í Safnahúsinu við Hverfisgötu verður fjallað um málefni þjóðlenda en þau tímamót urðu í desember sl. að óbyggðanefnd kvað upp síðustu úrskurði sína. Nefndin hefur þar með lokið því verkefni sínu sem hófst 1998 að fjalla um mörk þjóðlenda og eignarlanda á landinu öllu.

Ráðstefnan er öllum opin á meðan húsrúm leyfir en einnig verður hægt að fylgjast með í beinu streymi.

Smelltu hér til að skrá þig á ráðstefnuna

Dagskrá


8.30

Húsið opnar með morgunhressingu

9.00

Ávarp Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra

9.10

Þjóðlenda verður til: Markmið þjóðlendulaga og störf óbyggðanefndar

 

Karl Axelsson, hæstaréttardómari og fyrrverandi formaður óbyggðanefndar

Ása Ólafsdóttir, hæstaréttardómari og fyrrverandi formaður óbyggðanefndar

Hulda Árnadóttir, héraðsdómari og fyrrverandi formaður óbyggðanefndar

10.10

Kaffihlé

10.25

Pallborð I: Málsmeðferð óbyggðanefndar og aðkoma aðila

 

Edda Andradóttir, lögmaður hjá Juris

Ólafur Björnsson, lögmaður hjá Lögmannsstofu Ólafs Björnssonar

Friðbjörn Garðarsson, lögmaður hjá AX lögmannsþjónustu

Þorsteinn Magnússon, dómstjóri við Héraðsdóm Norðurlands vestra og fyrrverandi

framkvæmdastjóri óbyggðanefndar

11.00

Gagnaöflun og miðlun Þjóðskjalasafns um jarðamál

 

Ólafur Arnar Sveinsson, sviðsstjóri hjá Þjóðskjalasafni Íslands

11.20

Dómar Hæstaréttar í þjóðlendumálum

 

Valgerður Sólnes, prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands

11.40

Hvert er hlutverk forsætisráðuneytisins sem landeiganda?

 

Regína Sigurðardóttir, sérfræðingur í forsætisráðuneytinu

11.55

Hádegishressing

12.15

Pallborð II: Þjóðlendur og framtíðin

 

Magnús Orri Marínarson Schram, forstöðumaður nýrra áfangastaða hjá Bláa lóninu

Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Náttúruverndarstofnunar

Elín Björk Jónasdóttir, varaforseti Ferðafélags Íslands

Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps

Jón Kjartan Ágústsson, sérfræðingur í skipulagsmálum hjá Orkuveitunni

Víðir Smári Petersen, prófessor í lögfræði við Lagadeild Háskóla Íslands

Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar

13.00

Ráðstefnuslit

Fundarstjóri: Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu