02 mars 2026

/

Utanríkisráðuneytið

Hakkaþon Atlantshafsbandalagsins á Íslandi

{image.Description}
Keppendur á Hakkaþoni Atlantshafsbandalagsins sem haldið var í Grósku í síðustu viku.

Árlegur tækniviðburður á vegum Atlantshafsbandalagsins, e. NATO TIDE Hackathon 2026, fór fram á Íslandi í síðustu viku. Markmið hans er að stuðla að aukinni stafrænni samvirkni og nýtingu gervigreindar í þágu bandalagsins. 

Um var að ræða samstarfsverkefni umbreytingaherstjórnar Atlantshafsbandalagsins (NATO ACT), utanríkisráðuneytisins, Háskóla Íslands og Vísindagarða, en auk þess stóð Íslandsstofa fyrir hliðarviðburði fyrir íslensk tæknifyrirtæki til að kynna starfsemi sína.

Alls voru skráðir til leiks 140 keppendur, í 35 liðum frá 21 aðildarríki Atlantshafsbandalagsins, en auk þess tóku tvö lið frá Úkraínu þátt. Liðin komu bæði úr einkageiranum, t.a.m. frá flugvélaframleiðandanum Airbus, og frá hinu opinbera en kanadíski herinn sendi lið til keppni.

Liðin kepptust við að finna lausnir við raunverulegum áskorunum sem Úkraínumenn hafa þurft að kljást við síðan Rússar hófu allsherjarinnrásarstríð sitt í Úkraínu fyrir rúmum fjórum árum. Þá hafði Netöryggissveit íslenskra stjórnvalda, CERT-IS, umsjón með einni áskoruninni sem var raunhæf fyrir Ísland og snérist um að nýta gervigreind til að greina netárásir. 

„Ísland stendur framarlega í tæknimálum og því fór vel á því að þessi viðburður skyldi fara fram hérlendis. Við Íslendingar búum að yfirgripsmikilli tækniþekkingu en koma allra þessara erlendu sérfræðinga hingað til lands kemur svo sannarlega til með að nýtast okkur sem og Atlantshafsbandalaginu í heild sinni til að skara enn frekar frammúr,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Að hýsa þennan viðburð undirstrikar mikilvægi þess að Ísland sé virkur þátttakandi í að móta örugga stafræna framtíð Atlantshafsbandalagsins og þá er auðvitað sérstaklega ánægjulegt að vita að öll þessi vinna kemur til með að nýtast sérstaklega vinum okkar í Úkraínu í varnarbaráttu þeirra gagnvart innrásarstríði Rússa.“

Sérstök verðlaunahátíð fór fram á föstudaginn, og var annað liðið frá Úkraínu á meðal sigurvegara. 

CERT-IS mun á næstu mánuðum meta niðurstöður og þær lausnir sem urðu til á Hakkaþoninu með það að markmiði að innleiða þær bestu inn í daglegt vinnuflæði, til að styðja hraðari og samræmdari viðbrögð við atvikum. Þá mun afrakstur Hakkaþonsins sömuleiðis koma til með að nýtast aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins til að styrkja sameiginlegar varnir bandalagsins og gera það betur í stakk búið til að takast á við áskoranir.