05 mars 2026
/
Innviðaráðuneytið
Framkvæmdahópur um borgarstefnu hefur störf
Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, hefur skipað framkvæmdahóp um borgarstefnu sem hefur það hlutverk að móta fáar en vel skilgreindar aðgerðir til að stuðla að því að markmiðum borgarstefnu verði náð. Fyrsta verkefni hópsins er að skilgreina aðgerðir sem mögulega gætu orðið hluti af nýrri byggðaáætlun.
Alþingi samþykkti þann 22. október sl. þingsályktun um borgarstefnu fyrir árin 2025-2040. Samkvæmt aðaltillögu borgarstefnu var innviðaráðherra falið að koma á formlegum samstarfsvettvangi ríkisins og borgarsvæðanna sem stuðli að því að markmiðum borgarstefnu verði náð. Samkvæmt ákvörðun innviðaráðherra mynda innviðaráðherra, borgarstjóri í Reykjavík og bæjarstjóri á Akureyri hinn formlega samráðsvettvang sem skal funda a.m.k. árlega. Framkvæmdahópurinn heyrir undir samráðsvettvang um borgarstefnu og hefur það hlutverk að móta fáar en vel skilgreindar aðgerðir í samræmi við þá framtíðarsýn sem birtist í þingsályktun um borgarstefnu.
Framkvæmdahópurinn er þannig skipaður:
- Jóhanna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri og fulltrúi innviðaráðuneytisins, formaður hópsins,
- Guðjón Björn Guðbjartsson, sérfræðingur og fulltrúi forsætisráðuneytisins,
- Íris Huld Christersdóttir, sérfræðingur og fulltrúi fjármála- og efnahagsráðuneytisins,
- Reinhard Reynisson, sérfræðingur og fulltrúi Byggðastofnunar,
- Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, framkvæmdastjóri og fulltrúi Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra
- Hulda Sif Hermannsdóttir, aðstoðarmaður bæjarstjóra og fulltrúi Akureyrarbæjar,
- Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri og fulltrúi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu,
- Þorsteinn Gunnarsson, borgarritari, fulltrúi Reykjavíkurborgar.
Vinna við mótun byggðaáætlunar er í fullum gangi og niðurstöður framkvæmdahópsins verða nýttar við áframhaldandi stefnumótun. Minnt er á að grænbók um byggðamál er nú í opnu samráði í samráðsgátt stjórnvalda. Frestur til að skila umsögn um grænbókina er til og með 16. mars nk. Grænbókin og þær umsagnir sem berast verða nýttar við gerð stefnumótandi byggðaáætlunar, sem ráðgert er að verði birt í samráðsgátt stjórnvalda í maí til umsagnar. Innviðaráðherra stefnir að því að leggja fram tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2027-2041 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2027-2031 í haust.