05 mars 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Mælti fyrir frumvarpi sem felur í sér hækkun á stofnframlögum ríkisins til byggingar hagkvæmra leiguíbúða
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, mælti í dag fyrir frumvarpi um hækkun á stofnframlögum ríkisins og er frumvarpið hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum. Markmið breytinganna er bregðast við mikilli eftirspurn eftir leiguíbúðum á viðráðanlegu verði.
Um er að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um almennar íbúðir. Leiguíbúðir sem stjórnvöld hafa veitt stofnframlög til byggingar eða kaupa á kallast almennar íbúðir.
Almennar íbúðir eru ætlaðar þeim sem eru undir ákveðnum tekju- og eignamörkum, þar á meðal:
- námsmönnum
- öldruðum
- fötluðu fólki
- einstaklingum í erfiðri félagslegri eða fjárhagslegri stöðu
Megintillaga frumvarpsins er að stofnframlag ríkisins verði ekki lengur bundið við 18% heldur geti numið allt að 23%, og að ráðherra ákveði nánar hlutfallið í reglugerð. Markmiðið er að auka sveigjanleika kerfisins til að bregðast við sveiflum í byggingar- og fjármögnunarkostnaði.
Jafnframt er lagt til að viðbótarframlög vegna íbúða ætluðum námsmönnum og öryrkjum geti numið allt að 5% til viðbótar við almenn stofnframlög ríkisins, en heimildin er nú allt að 4%. Í greinargerð er vísað til gagnrýni um að núverandi viðbótarframlög dugi ekki nægjanlega til að halda húsnæðiskostnaði þessara hópa innan þeirra marka sem lögin gera ráð fyrir. Enn fremur er lagt til að heimild til að veita slík viðbótarframlög verði útvíkkuð og heimilt verði að veita þau þegar atvinnuhúsnæði er breytt í íbúðarhúsnæði.
Öruggt og viðráðanlegt leiguhúsnæði
Ráðherra lagði í framsöguræðu sinni áherslu á að frumvarpinu væri ætlað að styðja sérstaklega við uppbyggingu hagkvæms húsnæðis fyrir hópa sem standa höllum fæti á húsnæðismarkaði og hvetja til skynsamlegrar nýtingar núverandi byggingarmagns.
„Með þessu frumvarpi er stigið nauðsynlegt og mikilvægt skref til að styrkja almenna íbúðakerfið á tímum þar sem fjármögnunarumhverfið er krefjandi en þörfin fyrir öruggt og viðráðanlegt leiguhúsnæði er óumdeilanleg,“ sagði hann.