06 mars 2026

/

Dómsmálaráðuneytið

Frumvarp um stafræna málsmeðferð samþykkt á Alþingi

{image.Description}
Hari

Frumvarp dómsmálaráðherra um stafræna og rafræna málsmeðferð hjá sýslumönnum og dómstólum var samþykkt einróma á Alþingi í gær. Markmiðið með breytingunum er að einfalda og bæta þjónustu við almenning, tryggja skilvirkari afgreiðslu mála og stuðla að nútímalegri og notendavænni þjónustu. Þá er einnig stigið mikilvægt skref sem festir í sessi jafnt aðgengi að opinberri þjónustu, óháð búsetu.

Um er að ræða breytingar sem heimila sýslumönnum og dómstólum að bjóða upp á nútímalega málsmeðferð á grundvelli erfðalaga, laga um aðför, laga um skipti á dánarbúum o.fl., laga um gjaldþrotaskipti o.fl. og laga um nauðungarsölu. Með þessu eru lögfestar skýrar heimildir til að nýta ýmsar tæknilausnir við meðferð fjölda mála sem áður byggðu að mestu leyti á pappírsgögnum, mætingu í persónu og hefðbundnum samskiptum.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra 

„Þetta er mikilvægt byggðajöfnunarmál í mínum huga. Með þessu erum við að gera þjónustu hins opinbera einfaldari og aðgengilegri fyrir fólk. Almenningur á að geta leyst sín mál við stjórnvöld með skjótum og þægilegum hætti, án óþarfa pappírsvinnu eða ferðalaga. Stafræn málsmeðferð er mikilvægt skref til að bæta þjónustuna og tryggja hraðari og skilvirkari afgreiðslu mála,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.

Betra aðgengi að þjónustu óháð búsetu

Með breytingunum verður meðal annars heimilt að miðla gögnum stafrænt, nýta rafrænar staðfestingar og birta tilkynningar í stafrænu pósthólfi stjórnvalda. Þá er jafnframt kveðið á um aukna heimild til að nýta fjarfundabúnað við meðferð mála.

Lögin eru einnig liður í innleiðingu stefnu stjórnvalda um stafræna þjónustu hins opinbera og miða að því að gera málsmeðferð hlutlausari gagnvart tæknilausnum, þannig að hægt sé að nýta stafræna tækni samhliða hefðbundnum leiðum. Þá styðja lögin jafnframt við áherslur stjórnvalda og aðgerð A.8. Stjórnsýslustöðvar ríkis í héraði, í þingsályktun nr. 27/152 um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022-2036. Með lögunum skapast því betra aðgengi að þjónustu óháð búsetu og staðsetningu, auk þess sem að áhrif laganna munu styðja við aukna umhverfisvernd með minni pappírsnotkun.

Að lokum þykir ljóst að lögin munu styðja við áframhaldandi þróun stafrænnar þjónustu innan réttarvörslukerfisins og skapa betri forsendur til að nýta tæknilausnir sem auka skilvirkni og bæta þjónustu við almenning. Lögin eru þannig mikilvægur liður í áframhaldandi framþróun sýslumanns og dómstóla.