06 mars 2026

/

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Orkan lífæð íslensks hagkerfis

{image.Description}

Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra hrósaði Landsvirkjun fyrir sterka stöðu fyrirtækisins á ársfundi Landsvirkjunar. Hann sagði Ísland hafa einstaka stöðu þegar kemur að nýtingu náttúruauðlinda, orkan væri lífæð íslensks hagkerfis og ríkisstjórnin áformi að halda áfram að nýta hana, þjóðinni til heilla.

„Forskot sem við þurfum að nýta“

Ráðherra sagði ljóst að Ísland þyrfti að afla meiri orku á næstu árum, enda væri eftirspurnin að aukast hratt. „Við komum inn í raforkuöldina með forskot, og það er forskot sem við þurfum að nýta,“ sagði hann og vísaði til þeirra tækifæra sem felast í frekari orkuöflun.

Hann lagði áherslu á mikilvægi orkuframleiðslunnar fyrir íslenskt hagkerfi og sagði hana lífæð þess. Tekist hafi að byggja upp eitt öruggasta raforkukerfi heims í strjálbýlu landi, byggt á sjálfbærri orku.

Landsvirkjun krúnudjásn í eignasafni ríkisins

Daði Már sagði Landsvirkjun brautryðjanda í arðsemisgreiningu og greiðslu arðs til eiganda og lýsti fyrirtækinu sem einu af krúnudjásnum í eignasafni ríkisins. „Það er ákaflega ánægjulegt hvað Landsvirkjun hefur verið leiðandi í að ryðja til rúms þeirri hugsun að eðlilegt sé að gerð sé ávöxtunarkrafa á bundið fjármagn í opinberum fyrirtækjum“, sagði Daði Már.

Á þessu ári hafi fjármálaráðuneytið innleitt viðauka við eigendastefnu ríkisins, meðal annars með hliðsjón af þeirri nálgun sem Landsvirkjun hafi byggt á um árabil.

Staðan sterk þrátt fyrir áskoranir

Ráðherra benti á að rekstur Landsvirkjunar hafi gengið vel þrátt fyrir áskoranir og að lánshæfiseinkunn fyrirtækisins væri á pari við sambærileg orkufyrirtæki á Norðurlöndunum, skuldir hafi lækkað og sennilega væri staða fyrirtækisins enn sterkari en ársreikningar bendi til: „Skuldsetning hefur snarminnkað og raunar má halda því fram í ljósi þess hvers eðlis eignir Landsvirkjunar eru að sennilega sé eiginleg staða Landsvirkjunar ennþá sterkari en ársreikningar fyrirtækisins gefa til kynna einfaldlega vegna þess að vatnsaflsvirkjun fyrirtækisins hefur endingartíma sem er langtum, langtum lengri en afskriftartími mannvirkjanna,“ sagði ráðherra.