06 mars 2026
/
Forsætisráðuneytið
Utanríkisráðuneytið
Þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB lögð fram
Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt að leggja fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar varðandi þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið (ESB).
Í tillögunni er gert ráð fyrir að atkvæðagreiðslan fari fram 29. ágúst nk.
Frekari upplýsingar um efni þingsályktunartillögunnar er að finna á sérstökum upplýsingavef um þjóðaratkvæðagreiðsluna.